11.apr 2027 13:30

Perlumóða – Barokk & Boccherini

Salurinn

Salurinn
3.900 - 4.500 kr.

Á tónleikunum bjóðum við upp á ferðalag í gegnum fremur dramatíska prógramtónlist barokk og klassíska tímabil tónlistarsögunnar og spannar allt frá djúpri sorg til hressri danstónlistar.

Tónleikarnir byrja á Krossfestingarsónötunni fyrir fiðlu og basso continuo en sónatan er úr ónefndu sónötusafni eftir Tékkneska/Austurríska Heinrich I. F. Biber og raunar eru allar sónöturnar ónefndar, fyrir utan myndskreytingar sem komu í stað titils, og er safnið því oft kallað “dularfullu sónöturnar” eða “rósakranssónöturnar”. Sónötur safnsins krefjast allar mismunandi stillinga á fiðlunni, en sem betur fer þarf einungis að breyta stillingunni á einum streng af fjórum fyrir sónötuna sem nefnd var með teikningu af krossfestum manni.

Biber samdi tónlist sem einfaldlega hljómar oft eins og nútímatónlist, hljómagangarnir hans innihéldu all frá kirkjutóntegundum til einhvers sem líkist helst tólftónakerfi síðustu aldar. Krossfestingarsónatan er þó með venjulegri tónsmíðum Bibers.

Franska tónskáldið Jean-Féry Rebel er annað sjaldspilað tónskáld sem á skilið meiri hlustun, en hann skrifaði nokkra ómstríðustu hljóma sem ég hef nokkurn tíman heyrt frá barokktímum. Rebel samdi mikið af danstónlist og var einn þeirra fyrstu í Frakklandi til að semja tónlist í Ítalska stílnum. Hann var mjög náinn og lærði hjá betur þekkta tónskáldinu Jean-Baptiste Lully sem hann syrgði þegar hann samdi “Gröf Lully” til heiðurs honum.

Ítalinn Luigi Boccherini var frammúrskarandi sellisti og tónskáld sem framfleytti þróun sellóleiks svo um munar. Boccherini samdi níu kvintetta fyrir strengjakvartet og gítar og var einn þeirra fyrstu til þess að skrifa tónlist fyrir klassískan gítar þar sem gítarinn er jafningi hinna raddana í stað þess að vera til meðleiks. Lokakafli “Fandango” kvintettsins var saminn með spænskan innblástur og sellistinn spilar einnig á kastaníettur fyrir fólk að dilla sér við. 

Flytjendur eru Tríó Sól, Emma Garðarsdóttir, Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir, og vinir þeirra, gítarleikarinn Francesco Rista og sellóleikarinn Þórdís Gerður Jónsdóttir, sem hafa mikla unun af því að vinna saman.

Efnisskrá:

H. I. F. von Biber (1644-1704): Sónata nr. 10, Krossfestingin, úr „dularfulla“ sónötusafninu (Die Kreuzigung Jesu)

J. F. Rebel (1666-1747): Tríósónata í c-moll, Gröf herra Lully (Le Tombeau de Monsieur de Lully)

L. Boccherini (1743-1804): Gítarkvintet nr. 7 í e-moll, G-451.

L. Boccherini: Gítarkvintet nr. 4 í d-moll, G-448. „Fandango“

Deildu þessum viðburði

04
okt
Salurinn
11
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn
16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
okt
Bókasafn Kópavogs
03
okt
Náttúrusafn Kópavogs
03
okt
Bókasafn Kópavogs
04
okt
Salurinn
05
okt
Bókasafn Kópavogs
06
okt
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

04
okt
Salurinn
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn
15
okt
Salurinn
16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira