12.mar 2027 20:00

Blóðbönd | Helga Möller & Elísabet Ormslev

Salurinn

Salurinn
Blóðbönd er nýjasta tónleikaröð Salarins þar sem einstaklingar tengdir blóðböndum stíga saman á svið. Ólíkar stefnur, ólíkar kynslóðir - sameiginleg rót.
8.900-9.900kr.

Blóðbönd er nýjasta tónleikaröð Salarins þar sem einstaklingar tengdir blóðböndum stíga saman á svið. Ólíkar stefnur, ólíkar kynslóðir – sameiginleg rót.
Hér eru á ferðinni einlægir tónleikar sem snúast um samspil, fjölskyldubönd og tónlist sem verður aðeins til á milli þeirra sem eiga sameiginlegan hljóðheim.

Mæðgurnar Helga Möller og Elísabet Ormslev sameina krafta sína á tónleikum þar sem tvær kynslóðir söngkvenna mætast á sviðinu.

Helga Möller er ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar og hefur átt langan og litríkan feril. Hún steig á Eurovision-sviðið árið 1986 með ICY hópnum með lagið „Gleðibankinn” og varð síðar hluti af dúettinum Þú og Ég, sem naut mikilla vinsælda á diskótímabilinu með lögum á borð við „Dans, dans, dans”, „Þú og ég” og „Í Reykjavíkurborg”. Helga hefur einnig átt stóran þátt í að gera íslensk jólalög að hluta af jólaminningum þjóðarinnar.

Elísabet Ormslev hefur getið sér gott orð sem söngkona og lagahöfundur með kraftmikla rödd og sterka sviðsframkomu. Hún hefur komið víða við á tónlistarferlinum, tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins, gefið út lög á borð við „Sugar”, sem náði toppsæti á íslenskum vinsældalistum árið 2019, og „Heart Beats”, sem heyrðist í vinsælu raunveruleikaþáttunum Love Is Blind á Netflix. Hún hefur einnig framleitt vinsæla tónleika á borð við GRL PWR og Adele heiðurstónleika og var fastagestur á sjónvarpsskjáum landsmanna með hljómsveitinni Albatross í Tónaflóði RÚV árið 2020 og 2021.

Á þessum einstöku tónleikum mætast reynsla, orka, grín og tónlistarástríða mæðgnanna í söngveislu sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Ásgeir & Steini – 29.janúar
Diddú & Palli – 26.febrúar
Elísabet & Helga Möller – 12.mars
Svala & Krummi – 30.apríl

Deildu þessum viðburði

22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

08
nóv
Salurinn
25
nóv
Salurinn
09
jan
Salurinn
20
jan
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
Salurinn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

08
nóv
Salurinn

Sjá meira