Ungmennakvöld 13-17 ára

Bíó, borðspil og bugður fyrir 13-17 ára. Twilight verður sýnd á hvíta tjaldinu í Huldustofu á 3. hæð. Ungmennakvöld verða alla þriðjudaga frá kl. 19:30-21:30 á aðalsafni frá 14. mars.  Viðburðurinn er liður í afmælisdagskrá Bókasafns Kópavogs en safnið verður 70 ára þann 15. mars. Hlökkum til að sjá ykkur!

Kjalar tekur lagið

Tónlistarmaðurinn og Idol-keppandinn Kjalar Martinsson Kollmar syngur gamlar perlur fyrir gesti eins og honum einum er lagið á 2. hæð. Viðburðurinn er liður í afmælisdagskrá Bókasafns Kópavogs en safnið verður 70 ára þann 15. mars. Hlökkum til að sjá ykkur!

Together | Fjöltyngd listsmiðja

Velkomin í fjöltyngda listsmiðju sem leiðir saman menningarheima í gegnum úkraínsk mynstur! Í smiðjunni verður þátttakendum boðið að teikna á efni og skreyta sín eigin fötin undir áhrifum frá úkraínskum mynstrum. Þeim verður einnig boðið að fræðast um hefðbundinn úkraínskan textíl eins og vyshyvanka og rushnyk sem eru útsaumaðar skyrtur og klæði skreytt með táknum […]

Together | Fjöltyngd listsmiðja

Fjöltyngd listsmiðja fyrir fólk á öllum aldri, börn og fullorðin. Velkomin í fjöltyngda listsmiðju sem leiðir saman menningarheima í gegnum vefnað! Smiðjan er leidd af listamönnunum Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur og Othoniel Muniz. Í smiðjunni gefst þátttakendum tækifæri til að búa til sitt eigið vefspjald og vefa einfaldar myndir með innblæstri úr suður amerískum textíl. Allur […]

12 mílur klukkan 12

Aldarminning Gísla J. Ástþórssonar, blaðamanns, teiknara og höfundar myndasagnanna um Siggu Viggu.

(Ó)sýnileiki: Tengsl við fortíð í brothættri samtíð

Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði fjallar um sýnileika og ósýnileika jaðarsettra hópa og uppgjör við kynþáttahyggju í hádegiserindi. Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við sýninguna Að rekja brot (Tracing Fragments) sem nú stendur yfir í Gerðarsafni. —————— Á síðustu árum hefur verið aukin krafa um réttlæti og sýnileika jaðarsettra hópa og uppgjör við kynþáttahyggju sem […]