Taktur (& Tónfjöður)

Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Jón Þorsteinn Reynisson og Jónas Ásgeir Ásgeirsson.

Lífið (& Lækurinn)

Þráhyggja, ástarsorg, dauði Benedikt Kristjánsson og Mathias Halvorsen eru báðir eftirsóttir tónlistarmenn um heim allan. Hér takast þeir á við hinn magnaða sönglagaflokk Die schöne Müllerin (Malarastúlkuna fögru) eftir Franz Schuberts við ljóð Wilhelms Müllers. Hinn ungi og óharðnaði malarasveinn leggur upp í ferðalag, fullur tilhlökkunar yfir komandi ævintýrum. Hann fellur fyrir hinni fögru dóttur […]

Leiðsögn með Ólafi Gíslasyni

Ólafur Gíslason listfræðingur verður með leiðsögn um sýninguna Fora í Gerðarsafni laugardaginn 19. júní kl. 14:00. Öll eru hjartanlega velkomin. „Myndlistarverk verður aldrei endursagt í orðum. Orðin hafa sinn efnislega grunn í hljóðstöfunum sem koma úr kverkum okkar og ná til eyrnanna, myndlistarverkið á sinn efnislega grunn í áþreifanlegu efni þess og endurkasti birtunnar er […]

Onirisme Collectif #9

Hefur þig einhvern tímann langað til að upplifa list á meðan þú sefur? Onirisme Collectif er alþjóðlegur hópur listamanna sem skipuleggur næturlangar sýningar sem kanna draumheima. Gestum á viðburðum Onirisme Collectif er boðið að taka þátt í sameiginlegri upplifun á meðan þeir sofa, en þá fara listamenn á stjá og hafa með verkum sínum eða […]

Þegar sópran hittir tenór | Þá taka töfrar völdin

Agnes Thorsteins sópran, Omer Kobiljak tenór og píanóleikarinn Marcin Koziel  halda tónleika í Salnum í Kópavogi undir nafninu „ Þegar sópran hittir tenór -þá taka töfrar völdin“ Þar munu þau flytja ítölsk og þýsk lög, dúetta og ljóð. M.a eftir Wagner, Mascagni, Tchaikovsky, Falvo og Respighi. Agnes Thorsteins sópran  útskrifaðist með láði frá Tónlistarháskólanum í […]

Stúlkan með lævirkjaröddina

Fallegu dægurlagaperlurnar hennar Erlu Þorsteins Erla Þorsteins  var ein ástsælasta söngkona 20. aldarinnar og var oft kölluð stúlkan með lævirkjaröddina, söngferill hennar spannaði hins vegar aðeins fimm ár en hún hætti að syngja 26 ára gömul til að sinna eiginmanni og fjölskyldu. Þrátt fyrir það náði hún að gefa út fjölmargar smáskífur á þeim tíma […]

Leiðsögn og samtal um FORA

Leiðsögn og samtal um sýninguna FORA með Guju Dögg Hauksdóttur, arkitekt og Rósu Gísladóttur, myndlistarkonu. Samband byggingar- og höggmyndalistar frá fornu fari, samfélag og helgiathafnir, erkitýpur í byggingarlist og frásagnir í form og rými er á meðal þess sem ber á góma í samtali Guju Daggar og Rósu en aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega […]

Leslyndi með Silju Aðalsteinsdóttur

Leslyndi er viðburðaröð sem hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Silja Aðalsteinsdóttir kemur á Bókasafn Kópavogs að þessu sinni, nestuð nokkrum uppáhaldsbókum sem hún mun fjalla um. Aðgangur er ókeypis og […]

Leslyndi með Þórarni Eldjárn

Leslyndi er viðburðaröð sem hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Þórarinn Eldjárn mætir að þessu sinni á Bókasafn Kópavogs og fjallar um nokkrar af sínum uppáhaldsbókum. Aðgangur er ókeypis og öll […]

Leslyndi með Pétri Gunnarssyni

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Pétur Gunnarsson, rithöfundur, ríður á vaðið, og segir frá nokkrum af sínum uppáhaldsbókum. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. […]