Leðurblökuföndur á Lindasafni

Verið velkomin á Lindasafn í vetrarfríinu á leðurblökustöð þar sem hægt verður að kíkja í leðurblökuhellinn og útbúa sína eigin leðurblöku. Leðurblökustöðin er ókeypis og öll eru velkomin, stöðin verður á Lindasafni 22. og 23. október milli kl. 13 og 15.

Richard Andersson Trio feat. Sullivan Fortner & Jorge Rossy

Danski bassaleikarinn og tónskáldið Richard Andersson mætir með nýja tríóinu sínu í Salinn. Með honum eru tveir af mögnuðustu nútímadjassleikurum um þessar mundir: bandaríski píanistinn Sullivan Fortner og spænski trommarinn Jorge Rossy, heimsþekktur úr tríóinu Brad Mehldau Trio. Richard og Sullivan kynntust þegar þeir stunduðu báðir nám í Manhattan School of Music í New York. […]

Hversdagsleg teikning með Helgu Páley

Verið velkomin á teiknismiðju með myndlistarkonunni Helgu Páleyju Friðþjófsdóttur, miðvikudaginn 11. Nóvember klukkan 12:15 – 13:00. Aðgangur ókeypis! Í þessari hádegis smiðju sækjum við innblástur í verk Valgerðar Briem og skoðum hvernig hversdagsleg augnablik, hlutir og smáatriði geta orðið að efniviði í myndlist. Þátttakendur vinna með eigin upplifanir  og skapa teikningar þar sem hið hversdagslega […]

List og Náttúra: Plánetusmiðja

Verið velkomin í plánetusmiðju í Náttúrusafni miðvikudaginn 21. október frá 16:00-17:00! Aðgangur ókeypis og allt efnið er á staðnum. Í smiðjunni búum við til reikistjörnur, plánetur og önnur himintungl. Við munum fyrst skoða okkar eigið sólkerfi til að fá innblástur. Næst lítum við út fyrir það – til fjarreikistjarna, tungla annarra reikistjarna, stjarna í öðrum […]

Fjölþjóðleg sögusmiðja með Csilla Gévai

Barnabókahöfundurinn og grafíski hönnuðurinn Csilla Gévai mun halda skemmtilega sögusmiðju fyrir krakka á Bókasafni Kópavogs, mánudaginn 26. október frá 16.00-17.30. Þema smiðjunnar er hringrás náttúrunnar og umhverfisvitund. Smiðjan fer fram á ensku (og/eða ungversku, eftir þörfum), en foreldrar geta útskýrt fyrir börnum sínum á íslensku. Viðburðurinn er í boði Ungverska Menningarfélagsins og Sendiráðs Ungverjalands í […]

Grímusmiðja í vetrarfríi

Verið velkomin að klippa, lita og skreyta ykkar eigin dýragrímur. Einfalt og notalegt föndur á bókasafninu í vetrarfríinu. Smiðjan er frí og öll eru velkomin.

Stella í orlofi fertug!

Komdu með og fögnum saman fertugsafmæli einnar ástsælustu persónu íslensku kvikmyndasögunnar! Afmælisveisla með öllu tilheyrandi í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. Nóvember frá kl. 14:00 – 17:00. Gleðin hefst á samverustund með stjörnum og leikstjóra kvikmyndarinnar þar sem Edda Björgvins, Þórhildur Þorleifsdóttir og Sólveig Arnarsdóttir sitja fyrir svörum. Þær munu deila sögum og reynslu sinni […]

Ævintýrahúsasmiðja

Verið hjartanlega velkomin að búa til hús úr teppum, púðum og öðrum húsgögnum á græna teppinu í barnadeildinni. Hugmyndaflugið ræður ferðinni og útkoman eru mjúk híbýli.

Haustlaufasmiðja í vetrarfríi

Komið á Náttúrusafn Kópavogs í vetrarfríinu, föstudaginn 23. október milli 12:30-14:00, og lifið ykkur inn í haustlitina með föndri, kórónum og mandölum.Smiðjan verður með opnu sniði og öll eru velkomin.

Komdu að gera prent innblásin af Valgerði Briem!

Verið velkomin í prentsmiðju fyrir börn laugardaginn 24. október á milli 13:00 – 15:00. Allur efniðviður verður á staðnum og aðgangur er ókeypis. Í smiðjunni skapa þátttakendur einþrykk í anda verkanna Landlit eftir Valgerði Briem sem nú eru til sýnis á Gerðarsafni. Notast er við einföld efni sem falla til og verkfæri sem finnast á […]

Létt tækniaðstoð

Vantar þig smá aðstoð við tæknina?Alla fimmtudaga kl. 13–14 bjóðum við eldri borgurum upp á létta tækniaðstoð á aðalsafni Bókasafns Kópavogs. Við aðstoðum meðal annars með Rafbókasafnið, öpp og stillingar í símum, prentun og skönnun, tölvupóst og önnur einföld tæknimál. Komdu við og við reynum að leysa málið saman!

Létt tækniaðstoð

Vantar þig smá aðstoð við tæknina?Alla fimmtudaga kl. 13–14 bjóðum við eldri borgurum upp á létta tækniaðstoð á aðalsafni Bókasafns Kópavogs. Við aðstoðum meðal annars með Rafbókasafnið, öpp og stillingar í símum, prentun og skönnun, tölvupóst og önnur einföld tæknimál. Komdu við og við reynum að leysa málið saman!