Sunnudagsleiðsögn með safnstjóra | Gerður | Yfirlit

Sunnudaginn 19. ágúst kl. 15 verður haldin leiðsögn um sýninguna Gerður: Yfirlit. Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, safnstjóri Gerðarsafns, mun leiða gesti í gegnum sýninguna sem tekur breytingum síðar í mánuðinum.
Fjölskyldustund | Kviksjá

Í tengslum við Sýninguna Ó, hve hljótt verður kviksjá viðfangsefni fjölskyldustundarinnar í Gerðarsafni sem Hrund Atladóttir mun leiða. Kviksjá eða kaleidóskóp er rörlaga leikfang sem er alsett speglum að innanverðu sem endurspegla litlar skrautflygsur á borð við glerbúta, perlur eða speglabrot sem komið hafa verið fyrir í rörinu. Þegar horft er í kviksjána má sjá […]
Vetrarfrí I Sköpun í Stúdíói Gerðar

Í vetrarfríinu dagana 5. og 6. mars verður boðið upp á skapandi samverustundir í Stúdíói Gerðar. Börn, fjölskyldur og aðrir gestir geta gert listaverk úr spennandi efnivið, leikið með form og liti og gert stóra skúlptúra úr risakubbum safnsins.
Útlína | Opnunarviðburður

Velkomin á opnunarviðburð sýningarinnar Útlína með verkum, skissum og rannsóknarefni tíu nútíma- og samtímalistamanna úr safneign Gerðarsafns. Sýningarstjórarnir Brynja Sveinsdóttir og Hrafnhildur Gissurardóttir bjóða gestum í spjall um sýninguna og verður teiknileikur í boði fyrir yngstu gestina, sem listamaðurinn Edda Mac mun leiða. Opnunarviðburðurinn er gestum að kostnaðarlausu og léttar veitingar í boði. Útlína er […]
Opnun | Skýjaborg

Verið velkomin á sýningaropnun! Skýjaborg verður opnuð í Gerðarsafni laugardaginn 6. mars kl. 17.
Fjölskyldustund | Barbara ferðalangur

Barnabókateiknarinn Barbara Árnason er uppspretta vangaveltna um ferðalanginn en sjálf fluttist Barbara til Íslands frá Bretlandi árið 1937. Þátttakendur vinna út frá eigin sögum og teikningum um ferðalög og fjarlæg lönd. Smiðjan verður óháð tungumáli og er ætluð allri fjölskyldunni. Leiðbeinendur tala pólsku, íslensku, arabísku, frönsku, ensku og þýsku og er markmiðið að byggja upp samskipti þvert á tungumál […]
Langur fimmtudagur | Grakkarnir kynna „Soldið spes“

Grakkarnir ungmennaráð Gerðarsafns bregða á leik á fimmtudagskvöldið 28. október, á löngum fimmtudegi í Gerðarsafni.
Tríó Sól & Gerður Helgadóttir

Fimmtudaginn 25. júní kl. 19.00 mun strengjatríóið Tríó Sól flytja ljúfa tóna í Gerðarsafni í samtali við verk Gerðar Helgadóttur.
Mósaík teppasmiðja | Fjölskyldustund

Myndlistarkonan Þórdís Erla Zoëga verður með mósaík – teppasmiðju á neðri hæð Gerðarsafns á karnivali í upphafi hausts í öllum Menningarhúsunum í Kópavogi. Þar gefst gestum færi á að læra um aðferðir við mynstur gerð, hvernig maður býr til reglur og notar endurtekningar á sama tíma og sköpunarkrafturinn fær að leika lausum hala. Byrjað verður […]
Menning á miðvikudögum | Leiðsögn
Menning á miðvikudögum | Gjörningur um skírdreymi

Miðvikudaginn 2. maí kl. 12:15 verður fluttur gjörningurinn Embassy of Lucid Dreaming eftir Mariu-Magdalenu Ianchis, meistaranema í myndlist. Í gjörningnum birtist óræður heimur skírdreymis þar sem sá sofandi er meðvitaður um að hann dreymi og getur breytt framvindu drauma sinna. Gjörningurinn fer fram á ensku og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.
Snertipunktar | Þórdís Erla Zoëga & Stúdíó Flötur

Fimmtudaginn 25. júní kl. 18.00 verða frumsýndar nýjar vínýlmottur í safnbúð Gerðarsafns eftir myndlistarmanninn Þórdísi Erlu Zoëga, í samstarfi við Stúdíó Flöt.