Ljós í myrkri – Vigdís Hafliða og hljómsveit

Vigdís Hafliðadóttir syngur ýmis hugljúf íslensk og skandinavísk jólalög sem fjalla meira um ljósið og samveru og minna um stress og jólagjafir. Tónleikarnir inni í sal hefjast kl. 20 en húsið opnar kl. 19 og þar mun Tríóið Fjarkar spila í forsalnum og gestir eru því hvattir til að mæta fyrr og eiga samverustund með […]
Una Torfa í jólafötunum

Una Torfa kíkir í Salinn í jólaskapi! Á notalegum tónleikum mun Una flytja blöndu af sínum eigin lögum og jólalögum sem henni þykir vænt um. Hafsteinn Þráinsson verður með Unu á sviðinu og leikur á gítar. Í jólastressinu er ekkert betra en að gefa sér góða kvöldstund til þess að slaka á og rifja upp […]
Jólakötturinn & dularfulla kistan

JÓLAKÖTTURINN & DULARFULLA KISTAN Töfrandi barna- og fjölskyldusýning þar sem börnin taka virkan þátt í að bjarga jólunum! Jólakötturinn rambar óvænt inn í Salinn í Kópavogi og þvert á þjóðtrú reynist hann hið besta skinn, þó svo að hann sé vissulega mikill prakkari. Fljótlega sjá áhorfendur að Jólakötturinn er ekki í Salnum af eigin vilja. […]
Jólatónleikar Borgardætra

Borgardæturnar Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir mæta í Salinn með sína einstöku blöndu af hátíðleika og léttu glensi. Á efnisskránni eru lög af hinni rómuðu Jólaplötu, t.d. Amma engill, Litli stúfur, Þorláksmessa o.fl auk fjölbreyttra laga úr ýmsum áttum og auðvitað verður hið árlega áhættuatriði á sínum stað. Með þeim spila Eyþór […]
Jazzkonur og jólin með Páli Óskari

Hinar einu og sönnu Jazzkonur koma saman á sínum árlegu jólatónleikum í Salnum laugardaginn 12.desember. Á tónleikunum flytja þessar frábæru jazzsöngkonur öll sín uppáhalds jólalög ásamt kvartett Vignis Þórs Stefánssonar.Sérstakur gestur þeirra í ár engin annar en stórstjarnan Páll Óskar. Tónleikarnir hefjast kl.20:00 og eru um 2 klst með hléi.
Raddir rafmagna | Birgir Stefánsson og Hrönn Þráinsdóttir

Klassískar söngraddir umbreyta þeim rýmum sem þær hljóma í. Þær geta verið stórar, smáar, mjúkar og kraftmiklar, fínlegar, fallegar, viðkvæmar – jafnvel svakalegar eða yfirþyrmandi. Þótt þær séu órafmagnaðar ferðast þær um rýmin eins og rafmagn, snerta við áheyrendum og hlaða þá nýrri orku. Á þessum hádegistónleikum sem eru haldnir í samstarfi við Óperudaga, stinga […]
Hádegistónar FÍH | Ella Fitzgerald og Louis Armstrong

Í hádeginu þann 29. október munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, þau Birgitta Sveinsdóttir og Guðmundur Daníel Erlendsson, flytja lög eftir Ellu Fitzgerald og Louis Armstrong. Ella og Louis voru bandarískir tónlistarmenn sem höfðu mikil áhrif á sögu djassins. Ella var ein þekktasta djassöngkona allra tíma og Louis var þekktur trompetleikari og söngvari með sína einstöku, […]
Af hverju hlæjum við?

Finnbogi Þorkell leikari, hláturjógaleiðbeinandi, eigandi Gleðismiðjunnar til 6 ára og einlægur áhugamaður um hlátur fer hér á kostum í fyndnum og fræðandi fyrirlestri um hlátur. Erindið er haldið í tengslum við gulan september, öll velkomin.
Sigríður Thorlacíus & Jóhanna Vigdís: Á frönsku

Við fáum að kynnast óslökkvandi áhuga þeirra Sigríðar Thorlacíus og Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur á frönskum lögum frá ýmsum tímum.
Dolly Parton

Skráðu þig hér https://tinyurl.com/Daegurflugan á póstlista til að kaupa miða í forsölu á undan öllum öðrum. Selma Björns mun heiðra og minnast einnar ástsælustu og áhrifamestu tónlistarkonu allra tíma, sjálfa Dolly Parton. Ferill Dollýar spannaði tæp 70 ár snerti hún hjörtu margra með söng og lagasmíðum sínum ásamt einstökum karakter. Í textum Dolly Parton eru […]
Sagan um Ísfólkið – stórvirki sjoppubókmenntanna

Sagan um Ísfólkið hefur notið fádæma vinsælda á Íslandi. Bækurnar komu fyrst út á árunum 1982-1989 og seldist hver bók að meðaltali í 7-9000 eintökum. Þegar búið var að lesa fyrstu útgáfuna í tætlur voru bækurnar endurútgefnar í kringum 2008 og nú eru þær í stöðugu útláni á bókasöfnum og vinsælar á hljóðbókaveitum. Ísfólkið hefur […]
Melchior | Ljós í skóm – Útgáfutónleikar í Salnum

Í sumarbyrjun gaf hljómsveitin Melchior út 7ndu hljómplötu sína, Ljós í skóm. Af því tilefni efnir sveitin til útgáfutónleika í Salnum laugardaginn 26. september kl 17.00. Þar verður nýja platan flutt í heild sinni og nokkrar gamlar og góðar Melchior-perlur fá að fylgja með.