Lesið fyrir hunda

Bókasafn Kópavogs ásamt Vigdísi, vinum gæludýra á Íslandi, býður börnum að lesa fyrir hunda sem hafa fengið sérstaka þjálfun í að hlusta á upplestur. Aðeins eru sex laus pláss í hvert sinn. Smelltu hér til að skrá barn. Viðburðurinn er hugsaður fyrir 5-12 ára börn sem eru byrjuð að lesa sjálf. Lestrarstundin er ekki ætluð […]

Hádegistónar FÍH

Fjórða árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru […]

Hádegistónar | Jólatónar

Fjórða árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru […]

PISA-könnunin, úrval barnabóka og samstarf heimila við kennara

Hvað segja niðurstöður PISA-könnunarinnar okkur? Hvaða máli skiptir útgáfa barnabóka? Vilja börn yfir höfuð lesa? Hvert er hlutverk heimilanna? Þessar spurningar og margar fleiri brenna á þjóðinni eftir að niðurstöður PISA-könnunar voru kynntar og á sama tíma var kynntur samdráttur til Bókasafnssjóðs. Við fáum til okkar Gunnar Helgason, rithöfund, Sigríði Ólafsdóttur, dósent við Menntavísindasvið Háskóla […]

Síðsumarsganga Sögufélags Kópavogs 2026

Laugardaginn 19. september n.k   kl 13.00 verður fræðsluganga um náttúruvætti og álfa- og söguslóðir. Gengið verður hringur, fyrst að Álfhólnum, þaðan að bæjarstæði gamla Digranessbæjar, þá vestur  að Víghólnum og síðan aftur að upphafsstað. Mæting: Bílastæði Álfhólsskóla (Einnig er hægt að leggja á bílastæði við íþróttahúsið sem er örskammt frá) Áætluð tímalengd er 1 til […]

Perlumóða – Barokk & Boccherini

Á tónleikunum bjóðum við upp á ferðalag í gegnum fremur dramatíska prógramtónlist barokk og klassíska tímabil tónlistarsögunnar og spannar allt frá djúpri sorg til hressri danstónlistar. Tónleikarnir byrja á Krossfestingarsónötunni fyrir fiðlu og basso continuo en sónatan er úr ónefndu sónötusafni eftir Tékkneska/Austurríska Heinrich I. F. Biber og raunar eru allar sónöturnar ónefndar, fyrir utan […]

Jólin með þér | Jólatónleikar Ragnheiðar Gröndal

Notalegir jólatónleikar á síðasta sunnudegi í aðventu með Röggu Gröndal, Gumma Pé og Birgi Steini. Tónleikar fyrir fólk sem elskar lágstemmda jólatónlist og vill setja réttan tón fyrir hátíðina. Flutt verða lög af Vetrarljóðum Ragnheiðar sem er fyrir löngu orðin sígild aðventuplata, auk jólalaga í hennar flutningi sem og sígildra jólalaga sem öll elska.

Jólatímavélin – ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur

„Svona’ eru jólin“, orti skáldið en um hvaða jól var ort? Jólin sem langamma og langafi upplifðu voru allt öðruvísi en jólin í dag og svo eru hátíðarhöldin fjölbreytt um allan heiminn. Jólatímavélin er ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur þar sem tónlist liðinna jóla og skemmtilegar sögur fléttast saman. Tilvalin leið til að vekja […]

Temú jól með Halla, Góa & Jóni Ólafs

Jólatónleikar með þremur af ódýrustu skemmtikröftum Íslands. Líklega verður alltof mikið af öllu þegar slegið verður á létta jólastrengi og hressustu jólalögunum verður slátrað í vanfjármögnuðum útsetningum á þessum útsölutónleikum í anda Temú. Halli, Gói & Jón á sannkölluðu jólatilboði! Þeim til aðstoðar er gítarleikarinn Stefán Már Magnússon, umboðsmaður Temú á Íslandi.

,,Það gefur á bátinn…” Endurfundir við dægurlagatexta Kristjáns frá Djúpalæk

Kristján Einarsson frá Djúpalæk var eitt af bestu ljóðskáldum okkar Íslendinga á 20. öld. Auk þess að vera gott skáld í hefðbundnum skilningi, orti hann texta við mörg vinsæl dægurlög; Sjómannavalsinn, Þórð sjóara, Nótt í Atlavík, Vor í Vaglaskógi og mörg fleiri sem hljómuðu oft í óskalagaþáttum ríkisútvarpsins á þessum árum og hljóma enn.  Hljómsveitin […]

Í syngjandi jólasveiflu – Jólalög Geirmundar Valtýssonar

Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson er öllum að góðu kunnur eftir að hafa skemmt Íslendingum í áratugi. Hann hefur staðið á sviðinu allt frá árinu 1958 og verið einn afkastamesti tónlistarmaður landsins . Fjölmargir stórsmellir eru runnir frá Geirmundi auk fjölda breiðskífa en þær eru á annan tug. Á þessum tónleikum ætlum við að flytja jólalög eftir […]

Jólin enn á ný með Margréti Eir

Stórsöngkonan Margrét Eir hefur í rúma þrjá áratugi heillað landsmenn með sinni kraftmiklu rödd, hæfileikum og óneitanlegum sjarma en hún hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein okkar færasta og ástsælasta söngkona. Rödd Margrétar er ekki síst orðin ómissandi hluti af jólatónaflóðinu með öllu frá árlegum jólatónleikum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og Salnum í […]