Yown (Jón Friðgeir Sigurðsson) og Petrichor (Alejandro Arias), nemendur úr tónveri Tónlistarskóla Kópavogs, munu koma fram í Gerðarsafni kl. 19.00.
Lifandi flutningur frumsamdrar, sveimandi raftónlistar þar sem áhersla er lögð á hljóðheim, rými og stemningu.
Viðburðurinn er hluti af Safnanótt í Kópavogi og öll eru hjartanlega velkomin.

















