Sitjandi ,,bókmenntaganga“ með Frímanni
Frímann Ingi Helgason fer með gesti í bókmennta ,,gönguferð“ í huganum um Kópavog og fjallar um merk skáld sem þar hafa búið.
Viðburðurinn fer fram á 2. hæð Bókasafnsins og mun Frímann sýna gestum skemmtilegar myndir af gömlum húsum og bæjarstæðum þar sem skáld á borð við Guðmund Haglín, Jón Vör ofl. vörðu dögum sínum. Viðburður sem enginn söguunandi, frumbúi og bókmenntaáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara.
Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Teikning: Sigfús Halldórsson












