24.ágú ~ 07.okt

Skúlptúr/Skúlptúr

Gerðarsafn

24.08.2018 – 10.10.2018

Listamennirnir Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Steinunn Önnudóttir og Styrmir Örn Guðmundsson taka þátt í sýningarröðinni SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR 2018.
Sköpunarkraftur og tilraunastarfsemi Gerðar Helgadóttur er leiðarstef í allri starfsemi Gerðarsafns. Nú býður safnið fjórum völdum samtímalistamönnum að ganga inn í yfirstandandi sýningu Gerðar Helgadóttur undir hatti sýningarraðarinnar SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR.

Með sýningunni er gerð tilraun til að skoða skúlptúrinn í samtímanum og þróun þrívíðrar myndlistar, ekki einungis sem mikilvægum hluta listasögunnar heldur einnig sem lifandi sjónrænu tungumáli samtímalistarinnar. Sýningarröðin, sem fer nú fram í þriðja sinn, er ætlað að heiðra Gerði og framlag hennar til íslenskrar höggmyndalistar um leið og dregnar eru saman tengingar við hreyfingar í samtímaskúlptúr.

Gerðarsafn kallaði eftir umsóknum myndlistarmanna til þátttöku fyrr á árinu. Þátttakendur í sýningarröðinni í ár voru valdir úr 100 manna hópi listamanna. Það eru Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Steinunn Önnudóttir og Styrmir Örn Guðmundsson sem sýna verk sín, samhliða verkum Gerðar Helgadóttur.

Titillinn SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR vísar til sýningarinnar Skúlptúr / skúlptúr / skúlptúr sem haldin var á Kjarvalsstöðum árið 1994 en hún opnaði sama ár og Gerðarsafn var opnað fyrir gestum. Þar sýndu á þriðja tug listamanna verk sín en sýningunni var ætlað að gefa yfirlit yfir höggmyndalist þess tíma. Sýningin verður opnuð föstudaginn 24. ágúst kl. 20.

Listamenn:
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og MFA frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áslaug bjó um tíma í Bandaríkjunum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í samsýningum í söfnum og öðrum sýningarrýmum Evrópu, Bandaríkjunum og á Íslandi. Áslaug hélt sína fyrstu einkasýningu árið 2015 í Hverfisgallerí en sýnir nú einnig verk sín við hlið Svavars Guðnasonar í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði.

Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir (f.1982) starfar bæði í Reykjavík og Antwerpen, Belgíu. Hún lauk M.A. gráðu frá málaradeild KASK, Gent árið 2013 og framhaldsnámi við HISK, Higher Institute for Fine Arts, í Gent 2014 – 2015. Áður hafði hún lokið B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Jóhanna Kristbjörg hefur sýnt verk sín víðsvegar: má þar nefna listasafnið S.M.A.K. í Gent, Moscow Biennale 2015, Andersen’s Contemporary í Kaupmannahöfn, Ornis A. Gallery í Amsterdam og Kunsthalle São Paulo í Brazilíu. Einkasýning hennar, Margoft viðsjáum og Margoft viðsjáum aftur, var sett upp í Hafnarborg fyrr á árinu.

Steinunn Önnudóttir (f. 1984) úrskrifaðist með BA í myndlist frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2011 og lauk einnig BA í grafískri hönnun frá sama skóla árið 2009. Hún stundar nú MA nám í myndlist við Listaháskóla Íslands. Steinunn býr og starfar í Reykjavík þar sem hún rekur sýningarýmið Harbinger en einnig hefur hún fengist við útgáfu bóka og bókverka. Fyrsta einkasýning hennar Samastaður var sett upp í SÍM salnum árið 2015 en einnig sýndi hún í Ekkisens og tók þátt í sýningu Myndhöggvarafélagsins Hjólið sem opnaði í tengslum við Listahátíð í Reykjavík.

Styrmir Örn Guðmundsson (f. 1984) býr og starfar bæði í Varsjá, Póllandi og Reykjavík. Hann lauk listnámi í Amsterdam við Sandberg Institute (MA) árið 2012 og Gerrit Rietveld Academy (BFA) árið 2009. Í kjölfarið hefur Styrmir unnið að fjölbreyttum verkefnum, sýnt verk sín og flutt gjörninga á alþjóðlegum vettvangi, bæði á hátíðum, í söfnum og sýningarrýmum og innan leikhússins.  Nýlega flutti hann gjörninginn What Am I doing With My Life í skála Litháens á Feneyjartvíæringnum 2017, sem hefur verið sýndur víða bæði á Íslandi og í Evrópu.

LISTAFÓLK

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir

Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir

Steinunn Önnudóttir

Styrmir Örn Guðmundsson

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
apr
Bókasafn Kópavogs
18
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Holl fæða

19
apr
Salurinn
20:00

KLARA ELÍAS

20
apr
Gerðarsafn
21
apr
Salurinn
23
apr
Bókasafn Kópavogs
24
apr
Bókasafn Kópavogs
24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Bókasafn Kópavogs
04
maí
Salurinn
06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

20
apr
Gerðarsafn
24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Gerðarsafn

Sjá meira