02.nóv 2025 20:00 - 22:00

Söngleikjastælar | Salka Gústafsdóttir & Jóhann Sigurðarson

Salurinn

4.900 - 7.900 kr.

Söngleikjastælar snúa aftur vegna fjölda áskoranna. Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún mæta í Salinn með tónleikaröðina Söngleikjastæla. 

Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit.

Gestir kvöldsins verða nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson en þau munu flytja sín uppáhalds söngleikjalög. 

—     

Að þessu sinni verða þrennir tónleikar í tónleikaröðinni Söngleikjastælar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið. Ekki missa af enn meiri Söngleikjastælum:

7. febrúar: Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með. 

25. apríl: Sprengju-tónleikar með Söngleikjakórnum Viðlag.

SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA ÁSKRIFT Á ALLA ÞRJÁ TÓNLEIKANA Á EINSTÖKU TILBOÐI


Sigga Eyrún og Bjarni Snæbjörnsson eru ástríðufullir söng-leikarar. Samstarf þeirra hófst á Reykjavík Pride árið 2008 með söngleikjaparinu Viggó og Víólettu. Síðan þá hafa þau lagt hjarta og sál í söngleikjaformið og skemmt landanum á sviðum leikhúsanna, á árshátíðum, í afmælum og víðar. Meðal söngleikja sem þau hafa tekið þátt í eru: Vesalingarnir, Mary Poppins, Kardemommubærinn, Sem á himni, Slá í gegn, Ronja Ræningjadóttir, Jesus Christ Superstar, Frost og Góðan daginn, faggi. 

Hljómsveitin er sem fyrr skipuð okkar fremsta tónlistarfólki:

Karl Olgeirsson: hljómsveitarstjóri spilar á píanó, hljómborð, harmonikku o.fl.
Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur/slagverk
Andri Ólafsson á bassa

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

08
nóv
Salurinn
14
nóv
Salurinn
15
nóv
Salurinn
22
nóv
Salurinn
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira