Lífleg söngstund fyrir alla fjölskylduna í Lindasafni þar sem sungið verður um dýrin stór og smá. Öll fjölskyldan er boðin hjartanlega velkomin og tuskudýrin þeirra líka! Söngkonan Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir leiðir stundina ásamt meðleikara sínum Guðmundi Grétari gítarleikara – og syngur lög þar sem heimur dýranna lifnar við; fuglar, húsdýr og kannski eitt og eitt villidýr…
Að lokinni söngstundinni verður boðið upp á dýragrímu-föndur.
Viðburðurinn er hluti af fjölskyldustundum menningarhúsanna í Kópavogi. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.














