30.sep 2026 12:15 - 13:00

Teiknikennsla og barnakrot Valgerðar Briem: Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir

Gerðarsafn

Verið velkomin á leiðsögn um sýninguna Valgerður með listfræðingnum Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur miðvikudaginn 30. september klukkan 12:15-13:00. Aðalheiður skrifaði um áhrifamikinn kennsluferil Valgerðar Briem í bókinni Myndvit: Arfleið Valgerðar Briem, sem gefin var út samhliða sýningunni.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!

Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (f. 1968) er sjálfstættstarfandi fræðimaður á sviði listfræða, heimspeki og myndlistar. Árin 2010–2021 starfaði hún sem lektor og fagstjóri fræða við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og kennir enn námskeið í listfræði við sama skóla og við Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt ýmsum verkefnum á fagsviðum listfræða og myndlistar, þar á meðal rannsóknum, skrifum og sýningargerð. Rannsóknir hennar hafa aðallega beinst að samtíma myndlist, bókverkagerð listamanna og kynjafræðum innan lista. Aðalheiður Lilja lærði heimspeki við Háskóla Íslands og listheimspeki við Parísarháskóla 1, Panthéon-Sorbonne.

Nánar um sýninguna:
Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Ævistarf hennar mótaðist í samspili eigin listsköpunar og kennslu, þar sem form, litir, efni og sjónræn hugsun urðu að leiðarljósi. Valgerður steig fyrst fram opinberlega sem myndlistarmaður á Haustsýningu Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1980, þá 66 ára. Að baki þeirrar stundar lágu áratugir af einbeittri vinnu: teikningar, vatnslitir, vaxmyndir, skissur, letur og mynstur. Þegar fjölskylda Valgerðar færði Gerðarsafni um 1.640 verk á pappír árið 2006 varð umfang þessa ævistarfs fyrst fyllilega sýnilegt.
Gerðarsafn hlaut tveggja ára rannsóknarstyrk frá Safnasjóði til heildstæðrar frumrannsóknar á ævistarfi Valgerðar Briem, leidda af Cecilie Gaihede. Rannsóknin samtvinnar listfræðilega könnun á listsköpun hennar og miðlun í sýningu og útgáfu bókarinnar Myndvit – Arfleifð Valgerðar Briem, með fræðigreinum um listsköpun, kennslu og nálgun Valgerðar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

25
sep
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

26
sep
Bókasafn Kópavogs
26
sep
Bókasafn Kópavogs
26
sep
Gerðarsafn
28
sep
Bókasafn Kópavogs
29
sep
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

26
sep
Gerðarsafn

Sjá meira