Tendrað verður á jólastjörnunni við Hálsatorg föstudagsmorguninn 17. nóvember klukkan 9 .
Notalegir harmonikkutónar hljóma og börn úr Kársnesskóla syngja hátíðleg lög í tilefni dagsins.
Verið hjartanlega velkomin.
Þetta er fimmta árið í röð sem tendrað er á stjörnunni við Hálsatorg en hún veitir mikla og fallega lýsingu á svæðið, gangandi og akandi vegfarendum til mikillar ánægju.
Hálsatorg liggur við stjórnsýslubyggingu Kópavogsbæjar, gegnt Bókasafni Kópavogs og Tónlistarskóla Kópavogs.