27.nóv 2025 20:00 - 22:00

The Post Performance Blues Band | Bíó og tónlistargjörningur

Gerðarsafn

Gerðarsafn

The Post Performance Blues Band | Sýning á myndinni Band og tónlistargjörningur

EITT ÁR TIL AÐ MEIKAÐA EÐA… Meðlimir The Post Performance Blues Band, Álfrún, Hrefna og Saga, kanna möguleikana sem felast í ósigrum lífsins í þessari sprenghlægilegu tónlistar-heimildar mynd sem fór sigurför um heiminn.

Gerðarsafn sýnir heimildarmyndina Band (2022) eftir Álfrúnu Örnólfsdóttur fimmtudaginn 27. nóvember kl. 20:00 á neðri hæð safnsins. Myndin er sýnd í tengslum við sýninguna Skúlptúr skúlptúr performans en The Post Performance Blues Band (Álfrún Örnólfsdóttir, Hrefna Lind Lárusdóttir og Saga Kjerúlf) eiga verk á þeirri sýningu. Eftir sýningu á myndinni tekur hljómsveitin nokkur lög og verður boðið upp á spurningar til þeirra úr sal. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin! Heimildarmyndin Band er 88 mín. löng.

Um Band (2022):

Ef myndin This Is Spinal Tap (1984) hefði snúist um kvenkyns hóp af íslenskum sviðslistamönnum, þá myndi þetta líkjast mjög myndinni Band. Heimildarmynd Álfrúnar Örnólfsdóttur er stórkostleg og hjartnæm mynd af raunum The Post Performance Blues Band. Álfrún og vinkonur hennar, Saga og Hrefna, sem eru að nálgast fertugt, hafa verið þekktar í jaðartónlistarsenunni í Reykjavík frá árinu 2016 fyrir rafpönk tónlist og nútímadans í spandexgalla. Í myndinni ákveða þær að gefa sér eitt ár til að verða framúrstefnulegar poppstjörnur – eða gefa drauama sína upp á bátinn í eitt skipti fyrir öll. Myndin Band er litrík, brjáluð og hjartnæm mynd af fullorðins vináttu og óður til þess að elta drauminn sinn á djarfan, þó nokkuð kærulausan hátt.

Hér má sjá stiklu úr myndinni: https://www.youtube.com/watch?v=tKuqxJU-pIE

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Menning í Kópavogi
18
jún
Salurinn
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
jún
Salurinn
23
jún
Bókasafn Kópavogs
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira