19.sep 2026 11:30 - 12:30

Þjóðlagatónlist- og dansar | Barna- og fjölskyldustund

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Börn, foreldar, yngri og eldri systkyni, ömmur, afar og vinir eiga saman gæðastund í söng og leik. Sungin verða þekkt og minna þekkt lög úr íslenskri þjóðlagahefð. Stundinni er skipt í tvennt:
*11:30-12:00 fyrir 1-5 ára börn og fjölskyldur
*12:00-12:30 fyrir 6-11 ára börn og fjölskyldur

Umsjón hafa Bára Grímsdóttir og Chris Foster. Bára er eitt af fremstu tónskáldum Íslands og hefur um áratuga skeið unnið að varðveislu og miðlun íslenskrar þjóðlagaarfleifðar. Hún kemur úr fjölskyldu kvæðamanna, ólst upp við söng foreldra og afa og ömmu á bænum Grímstungu í Vatnsdal, og hefur um árabil verið formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Árið 2019 var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til varðveislu og endurnýjunar á íslenskum tónlistararfi.

Chris Foster er breskur þjóðlagasöngvari og hljóðfæraleikari, meistari í sínu fagi, sem búsettur er á Íslandi og leikur á gítar og langspil. Þau Bára hafa um árabil komið fram saman sem dúettinn Funi og gefið út meðal annars plöturnar Funi (2004), Flúr (2013) og nú Gárur (2026).

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. Hvort sem þú kemur til að hlusta, læra, dansa, syngja, skapa eða einfaldlega njóta samverunnar, þá gefst þér kostur á að kynnast fjölbreyttum alþýðulistum á nýjan hátt – og verða hluti af þeim. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

English:

11:30–12:30 Children’s and Family Hour of Folk Music and Dance
Children, parents, younger and older siblings, grandmothers, grandfathers, and friends share a quality time together with songs, singing games and action songs. The session is split into two parts:
*11:30–12:00 for children aged 1–5 and their families
*12:00–12:30 for children aged 6–11 and their families

The session is led by Bára Grímsdóttir and Chris Foster. Bára is one of Iceland’s foremost traditional singers and composers and has spent decades working to preserve and share Iceland’s folk music heritage. She comes from a family of traditional singers, having grown up surrounded by the songs of her parents and grandparents at the family farm of Grímstunga in Vatnsdalur, and has served for many years as chairperson of the Iðunn Folk Music Society (Kvæðamannafélagið Iðunn). In 2019, she was made a Knight of the Icelandic Order of the Falcon for her work preserving and renewing Iceland’s musical heritage. Chris Foster is an English folk singer and multi-instrumentalist – a master of his trade – who plays guitar and langspil. Together, Bára and Chris have performed for many years as the duo Funi, releasing the albums Funi (2004), Flúr (2013) and their latest release Gárur (2026). 

VAKA Folk Arts Festival takes place from September 13–19, 2026, in Kópavogur. The festival brings together music, dance, craft, storytelling, and poetry in a varied programme for curious guests of all ages. Whether you come to listen, learn, dance, sing, create, or simply enjoy being together, you’ll have the chance to discover a wide range of folk arts in a new way — and become part of them. VAKA is committed to making its events as accessible as possible. That’s why most events offer three different price tiers, allowing each guest to choose the price that suits them best. Secure your festival pass for access to all festival events.

All information about the festival can be found at www.vakareykjavik.is and on Vökufélagið’s social media channels. 

Deildu þessum viðburði

13
sep
19
sep
Salurinn
13
sep
Salurinn
18:30

GÁRUR

14
sep
Salurinn
17:00

ÞRÆÐIR

15
sep
Salurinn
15
sep
Salurinn
16
sep
Salurinn
17:00

RÆMUR

16
sep
Náttúrusafn Kópavogs
17
sep
Bókasafn Kópavogs
18
sep
Salurinn

Sjá meira

05
sep
Bókasafn Kópavogs
05
sep
Náttúrusafn Kópavogs
12
sep
Salurinn
12
sep
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

17
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

25
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Gerðarsafn
28
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

25
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Bókasafn Kópavogs
28
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs
02
sep
Bókasafn Kópavogs
02
sep
Bókasafn Kópavogs
03
sep
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira