24.sep 2023 13:30

Tímaferðalag um tónsmíðar Wagners

Salurinn

2.600 - 5.200 kr.

Fjölbreytt söngtónlist eftir Richard Wagner.

Frönsk ljóð, Wesendonck Lieder og aríur.

Á tónleikunum verður boðið upp á tímaferðalag um tónsmíðar Richards Wagner þar sem byrjað er á hans fyrri verkum og síðan þræddir leyndir stígar lita og tónmáls í tímaröð.

Wagner var maður leikhúss og tónlistar, og hann hafði þá hugsjón að sameina texta, tónlist, sjónlistir og heimspeki í eitt heildstætt listform  (Gesamtkunstwerk). Mörg verka hans eru innblásin af goðafræði, ekki síst norrænni goðafræði, með fornum hetjum og ævintýraheimum. 

Á þessu tímaferðalagi kynnumst við  ástum, vonum, gleði, sorgum og dauða nokkurra kvenna á 19. öldinni.

Á fyrri hluta efnisskrárinnar eru þrjú frönsk ljóð (1839) frá fyrri hluta ferils Wagners sem bera með sér andblæ léttleika og æsku ásamt aríum úr Lohengrin og Tannhäuser.  Síðari hlutinn hefur að geyma  Wesendonk-ljóðin, sem eru eftir Mathilde, eiginkonu Ottos Wesendonck, velgjörðarmanns Wagners.  Að lokum er svo arían Mild und leise úr óperunni Tristan og Isold.  Tónlistin við Wesendonck-ljóðin var samin 1877-8 og var öðrum þræði eins konar formáli eða forstúdía að óperunni Tristan og Ísold.

Ef keyptir eru miðar á alla tónleikana fæst 50% afsláttur af miðaverði

FRAM KOMA

Anna Jónsdóttir

Ástríður Alda

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

07
jún
Salurinn
09
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
11
jún
Salurinn
12
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

07
jún
Salurinn
11
jún
Salurinn
18
jún
Salurinn
21
jún
Salurinn
25
jún
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fallin

17
sep
Salurinn
20:30

Halli & Gói

01
okt
Salurinn
04
okt
Salurinn

Sjá meira