19.feb 2026 13:00 - 15:00

Together | Fjöltyngd brúðusmiðja

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið velkomin í fjöltyngda brúðusmiðju í Vetrarfríinu fimmtudaginn 19. febrúar frá kl. 13:00-15:00 í Gerðarsafni.

[Polski poniżej]

Í smiðjunni fá þátttakendur tækifæri til að búa til sínar eigin brúður úr alls kyns litríkum og skemmtilegum efnivið undir leiðsögn listamannanna Styrmis Arnar Guðmundssonar og Agötu Mickiewicz sem tala íslensku, ensku og pólsku.

Smiðjan er opin gestum á öllum aldri og er hægt að koma við á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. Allur efniviður verður á staðnum.

Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Smiðjan er liður í viðburðaröðinni Together sem er skipulögð af Menningarhúsunum í Kópavogi í samstarfi við GETU – hjálparsamtök. Markmiðið er að stuðla að gagnkvæmum skilningi menningarheima og að vera samskipta- og sköpunarvettvangur fyrir fólk úr ólíkum áttum.

Viðburðurinn er styrktur af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Dołącz do nas na wielojęzyczne warsztaty kukiełkowe podczas przerwy zimowej w czwartek 19 Lutego,  w godzinach 13:00 – 15:00.

Podczas tych warsztatów goście mają szansę stworzyć własną pacynkę z różnorodnych i kolorowych materiałów pod okiem artystów Styrmira Örna Guðmundssona i Agaty Mickiewicz, którzy mówią po islandzku, angielsku i polsku.

Warsztaty są otwarte dla osób w każdym wieku i na każdym poziomie umiejętności. Goście mogą przyjść w dowolnym momencie podczas warsztatów. Wszystkie materiały zostaną zapewnione.

Wydarzenie bezpłatne — wszyscy są mile widziani.

Warsztaty te są częścią serii wydarzeń Together, organizowanej przez Domy Kultury w Kópavogur we współpracy z organizacją pomocową GETA, której celem jest zwiększenie inkluzywności i promowanie zrozumienia międzykulturowego.

Wydarzenie jest wspierane przez Radę Sztuki i Kultury.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Menning í Kópavogi
18
jún
Salurinn
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
jún
Salurinn
23
jún
Menning í Kópavogi
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira