08.jan 2025 16:15 - 17:00

Tunglið

Náttúrusafn Kópavogs | Menning í Kópavogi

Í fyrsta Vísindaskóla ársins 2025 nýtum við skammdegið og fræðumst tunglið okkar. 🌕✨

Langar þig að vita af hverju tunglið virðist stækka og minnka? Eða hvernig gígar þess verða til? Þá er þetta viðburður fyrir þig!

Stjörnu-Sævar mun segja gestum frá undrum tunglsins. Viðburðurinn hefst kl. 16:15 með stuttri fræðslu, síðan fá gestir að taka þátt í skemmtilegum verkefnum. Ef skyggni og veður leyfir, verður farið út í tunglskoðun. Því er mikilvægt að koma vel klædd og með forvitnina í farteskinu!

Hvenær: 8. desember
Tími: 16:15–17:00
Aldur: 6–12 ára
Staður: Náttúrufræðistofa Kópavogs

Aðgangur er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur! 👩‍🔬🧑‍🔬
_________________________________________
Í Vísindaskóla Náttúrufræðistofu Kópavogs þarf ekki að sækja um inngöngu – það er nóg að mæta! Í skólanum framkvæmum við tilraunir, fræðumst um náttúruna og skemmtum okkur saman. Öll fá að gerast vísindamenn, prófa tilraunir, draga ályktanir og læra á skapandi hátt.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

13
apr
Bókasafn Kópavogs
14
apr
Bókasafn Kópavogs
15
apr
Bókasafn Kópavogs
15
apr
Bókasafn Kópavogs
16
apr
Salurinn
16
apr
Bókasafn Kópavogs
12:15

Netöryggi

17
apr
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

Náttúrusafn Kópavogs

07
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira