14.sep 2026 17:00 - 21:00

Salurinn

Salurinn

Handverk, sögur og lifandi hefðir 

Velkomin á notalega síðdegisstund þar sem handverk, sögur, söngur og þjóðlegar hefðir fléttast saman í einum viðburði. 

Frá síðdegi og fram á kvöld verður fordyri Salarins að samkomustað þar sem gestir eru hvattir til að taka með sér prjóna, útsaum, hekl eða annað handverk og njóta samverunnar. 

Félagar úr Heimilisiðnaðarfélagi Íslands verða á staðnum, sýna handverk og veita leiðsögn þeim sem vilja. Þegar líður á kvöldið leiðir þjóðfræðingurinn Rósa Þorsteinsdóttir gesti inn í hljóðheim Ísmús-safnsins með vel völdum upptökum úr íslenskum menningararfi og segir frá sögunum sem þær geyma. Að því loknu stýrir Kristinn Schram lifandi hlaðvarpi um þjóðlistir og lifandi hefðir. Hlaðvarpskvöldið byggir á einkar fjölbreyttri dagskrá þetta árið og býður upp á fróðlegt samtal og vangaveltur um hlutverk þjóðlistanna í samtímanum. 

ÞRÆÐIR er viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á handverki, sögum og menningararfi — eða vilja einfaldlega eiga notalega stund í góðum félagsskap. Gestir geta komið og farið að vild, eða sest niður með handverkið sitt og fylgt dagskránni frá síðdegi og fram á kvöld.

Aðgangur er ókeypis en léttar veitingar verða til sölu á staðnum. 

//

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

08
nóv
Salurinn

Sjá meira