06.feb 2026 18:00 ~ 07.feb 2026

Umbrot 2026

Menning í Kópavogi

Kópavogskirkja

Ljóslistaverkinu Umbrot 2026 verður varpað á Kópavogskirkju á Safnanótt. Listamanneskjan sem vann verkið í ár er Hekla Dögg Jónsdóttir.

Verkið sýnir hafís sem brotnar þegar ísbrjótur siglir hægfara í gegnum ísbreiðuna. Myndræn lög og hreyfing umbreytast stöðugt og skarast við form kirkjunnar.

Verkinu verður varpað 6. og 7. febrúar frá kl. 18 til miðnættis.

Hekla Dögg Jónsdóttir nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk BFA- og MFA-gráðu frá California Institute of the Arts. Hún hefur einnig stundað nám í Þýskalandi og í Maine í Bandaríkjunum. Hekla er einn stofnenda Kling & Bang gallerísins, hefur starfað sem sýningarstjóri og kennt við Listaháskóla Íslands.

Töfrar eru leiðarstef í verkum Heklu þar sem hún leitast við að fanga „fullkomnu augnablikin“ þegar hið dásamlega birtist óvænt á ólíklegustu stöðum.

Athugið að verkinu er varpað bæði 6. og 7. febrúar frá 18 til 23

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

06
júl
10
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

14
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
17
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Menning í Kópavogi

11
ágú
Menning í Kópavogi

Sjá meira