30.maí 2026 13:00 - 15:00

Útvarpssmiðja: Hverju brennur þú fyrir?

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin í smiðjuna Hverju brennur þú fyrir? með Ásrúnu Magnúsdóttur í Gerðarsafni þann 30. maí klukkan 13:00 – 15:00! Smiðjan er haldin í tengslum við sýninguna Landlæg hamingja eftir Jeremy Deller, unglingar og ungt fólk sérstaklega velkomin!📻📣

Í smiðjunni velur hver og einn sér verk af sýningu Jeremy Deller sem talar sérstaklega til þeirra og vinnur skapandi svar við því. Við nálgumst verkin frá eigin sjónarhorni, túlkum þau á persónulegan hátt og leggjum sérstaka áherslu á að svara verkinu og leggjum sérstaka áherslu á útvarpsmiðilinn sem leið til miðlunar.

Þátttakendur fá tækifæri til að þróa eigin rödd – til dæmis með því að skrifa pistil, gagnrýni eða umfjöllun, taka ímyndað viðtal við verkið eða listamanninn, eða búa til playlista sem svar við verki. Útvarpsformið verður í forgrunni sem skapandi vettvangur til að segja sögur, spyrja spurninga og miðla hugmyndum.

Ásrún Magnúsdóttir er danshöfundur sem vill hækka í röddum samfélagsins sem henni finnst að mætti heyrast betur í; gefa sviðið til þeirra sem vilja sjást og vera hlustað á. Hún hefur mikla reynslu í því að vinna með mismunandi samfélagshópum, sérstaklega ungu fólki, unglingum og börnum en líka minni samfélögum eins og hennar eigin nágrönnum eða íbúum ákveðinnar blokkar.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Menning í Kópavogi
18
jún
Salurinn
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
jún
Salurinn
23
jún
Menning í Kópavogi
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira