María Jónsdóttir, sópran og Jón Sigurðsson, píanóleikari flytja klassíska tónlist með örlitlum jólaljóma í sundlaug Kópavogs.
Flutt verður ljóðatónlist og aríur eftir Gounod, Poulenc, Duparc, Strauss, Hahn, Gomez, Adams og Kaldalóns.
Fram koma einnig félagar úr Samkór Kópavogs.
Tónleikagestir geta látið fara vel um sig í lauginni á meðan á tónleikum stendur og standa tónleikarnir öllum sundlaugagestum til boða.
Tónleikarnir fara fram í stóru inni sundlauginni. Þeir sem hafa hug á að mæta en vera á þurru landi þurfa að mæta með sæti með sér. Börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.