19.sep 2025 20:00

Vegar & Vegard | Ragga Gröndal Trad Squad

Salurinn

Salurinn
3.000 - 3.500 kr.

Á VÖKU þjóðlistahátíð stýrir Ragga Gröndal tónlistarkona einvalaliði fjölskrúðugra og fjölhæfra tónlistarmanna, en með henni koma fram þau Unnur Birna Björnsdóttir söngkona og fiðluleikari, Guðmundur Pétursson gítarleikari og Pétur Grétarsson slagverksleikari. Kvartettinn hrærir í íslenskum þjóðlagaarfi og reiðir m.a. fram þjóðlög, tvísöngva og frumsamið þjóðlagaskotið efni í ferskum búningi.

Tveir af fremstu þjóðlagatónlistarmönnum Noregs, Vegar Vårdal, fiðlu- og harðangursfiðluleikari og þjóðdansari, og Vegard Hansen harmonikuleikari, koma fram á VÖKU með kraftmikla og dansvæna tónlist frá Noregi. Þeir hafa báðir starfað með fjölbreyttum hljómsveitum, meðal annars Gjevre, Odde & Vårdal, Skrot, Madam Jam, Sindre og co og Patrik & Vegar. Báðir hafa þeir unnið til verðlauna innan þjóðlistageirans í Noregi og voru í fremstu röð á Landsfestivalen í Noregi.
Á tónleikunum er boðið upp á einstaka innsýn í norska tónlistarhefð þar sem áheyrn mætir dansgleði, hrynþokka og bravúr.

VAKA þjóðlistahátíð 2025 fagnar lifandi hefðum dagana 15. – 21. september með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna. Á VÖKU 2025 verður í boði að hlýða á marga helstu kvæðamenn Íslands, fræðast og njóta þjóðlagatónlistar frá Íslandi og Noregi, kynna sér nýútgefin íslensk dans- og sönglög frá 19. öld, kynna sér íslenskt handverk fyrri alda sem og sækja erindi og fjölbreyttar vinnustofur um íslenska ljóðlist, íslenskt handverk, þjóðdansa, hljóðfæraleik og danstónlist frá Íslandi, Noregi og Kólumbíu. Boðið verður upp á fjölbreytta samveru í formi samsöngs, dans og samspils, og í lok hátíðar verður haldið málþing um alþýðuhljóðfæraleik í Reykjavík á fyrri öldum.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

05
nóv
Salurinn
20:30

Jónas Sig

08
nóv
Salurinn
14
nóv
Salurinn
15
nóv
Salurinn
22
nóv
Salurinn
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira