25.feb 2019 13:00

Vetrarfrí | Hljóðlistasmiðja

Gerðarsafn

Hljóðlistasmiðja með Curver Thoroddsen fyrir 10 - 14 ára.

Tónlistar- og myndlistarmaðurinn Curver Thoroddsen, leiðir hljóðlistasmiðju fyrir 10-14 ára í Vetrarfríi grunnskólanna, daganna 25. og 26. febrúar, þar sem áhersla er lögð á samspil hljóðs og myndar. Þátttakendur fá afnot af hljóðfærum og skapa ýmiskonar hljóðverk með hliðsjón af myndefni.
Curver er þekktur fyrir gjörninga sína og vídeóverk þar sem listin og hversdagslegar athafnir renna saman. Hann stundaði myndlist við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist með MFA gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Hann er einnig lærður listgreinakennari og hefur m.a. starfað með tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur í menntaverkefninu Biophilia. Síðustu ár hefur Curver skipað dúettinn Ghostigital ásamt Einari Erni Benediktssyni og hafa vakið verðskuldaða athygli og gefið út plötur víða um heim. Auk þess er Curver afkastamikill upptökustjóri. Meðal annars stýrði hann nýlega upptökum á plötunni Kinder Versions með Mammút en hún fékk frábærar viðtökur og vann Íslensku tónlistarverðlaunin sem besta rokkplatan.
Smiðjan hefst stundvíslega kl. 13:00 og henni lýkur kl. 15:00.
Aðgangur er ókeypis en það er takmarkað pláss.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
12
okt
Bókasafn Kópavogs
13
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Salurinn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

Gerðarsafn

22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn

Sjá meira