Í vetrarfríinu dagana 5. og 6. mars verður boðið upp á skapandi samverustundir í Stúdíói Gerðar. Börn, fjölskyldur og aðrir gestir geta gert listaverk úr spennandi efnivið, leikið með form og liti og gert stóra skúlptúra úr risakubbum safnsins.
Fimmtudagur 5. mars kl. 13:00-16:00 – Vatnslitahorn og ljósaborð fyrir börnin í Stúdíói Gerðar.
Föstudagur 6. mars kl. 13:00-16:00 – Ljósmyndabrenglun – Hallgerður Hallgrímsdóttir ljósmyndari býður fólki að búa til sína eigin camera obscura pappakassamyndavél og kynnast því hvernig myndavélin virkar.
Sköpun í Stúdíó Gerðar er opin fyrir alla og aðgangur ókeypis!