04.feb 18:00 ~ 05.feb 23:00

Vörpun eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur

Kópavogskirkja
Á Vetrarhátíð í Kópavogi verður verki eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur varpað á Kópavogskirkju föstudags- og laugardagskvöldið 4. - 5. febrúar frá 18 - 23.

Á Vetrarhátíð í Kópavogi verður verki eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur varpað á Kópavogskirkju föstudags- og laugardagskvöldið 4. – 5. febrúar frá 18 – 23.

Verk Sirru, sem er gert sérstaklega fyrir form Kópavogskirkju og í samtali við list Gerðar Helgadóttur, er gert að beiðni Kópavogsbæjar í tilefni Vetrarhátíðar. Hátíðin verður að þessu sinni lágstemmd og munu ljósaverk og listaverk utandyra vera í forgrunni.

Verk Sirru eru kosmísk í eðli sínu og tengjast vangaveltum um stöðu okkar í gangverki náttúru, eðlisfræði og þeirra afla sem halda heiminum gangandi. Nýtt verk Sirru sækir innblástur í verk Gerðar Helgadóttur; vitnað er til lita og forma í gler- og mósaíkverkum Gerðar, en jafnframt til áhuga hennar á gangi himintungla, dulspeki og tengingu mannsins við alheiminn.

Sirra Sigrún lauk BA prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og útskrifaðist með meistaragráðu frá School of Visual Arts í New York 2013. Hún hefur haldið einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Listasafni Árnesinga, Hafnarborg og Kling & Bang og tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim, . þar á meðal í Kína, Finnlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Sirra hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir list sína og m.a. fengið styrki og viðurkenningar úr listasjóðum Svavars Guðnasonar, Guðmundu Andrésdóttur og verðlaun Guðmundu S. Kristinsdóttur. Sirra Sigrún var listamaður Kærleikskúlunnar 2021.

Verkinu verður varpað á Kópavogskirkju frá 18 – 23 föstudags- og laugardagskvöldið 4. og 5. febrúar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
14
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Salurinn
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
16
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

18
maí
Salurinn
18
maí
Salurinn
13:30

Vistarverur

18
maí
Salurinn
24
maí
Salurinn
28
maí
04
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira