Hljóðvapp um Kópavog

Flanerí KÓP eru hljóðgöngur um Kópavog.

Flanerí Kóp eru hljóðgöngur um Kópavog í formi hlaðvarps sem njóta má hvenær sem er. Fyrsta hljóðgangan fór í loftið á Vetrarhátíð í Kópavogi, 5. febrúar og verður aðgengileg um ókomna tíð. Það eina sem þarf er klæðnaður eftir veðri og heyrnartól, efninu er hlaðið niður af vefsíðunni flaneri.is og lagt í ævintýraleiðangur. Efnið er ókeypis og öllum aðgengilegt.

Frá Sólarslóð til Kópavogskirkju

Flanerí -hópinn skipa Aðalbjörg Árnadóttir, sviðslistakona, Snorri Rafn Hallsson, heimspekingur og dagskrárgerðarmaður, Elísabet Jónsdóttir, grafískur hönnuður og Rannveig Bjarnadóttir, vefstjóri og sjúkraþjálfari. Hópurinn fékk á dögunum styrk frá Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar til að framleiða hljóðgöngur um sögu og samtíma Kópavogs og er fyrsta gangan helguð útilistaverkum í nágrenni Menningarhúsanna. 

Gangan hefst við Bókasafn Kópavogs þar sem Sólarslóð, stórt útilistaverk Teresu Himmer á Hálsatorgi blasir við. Frá Sólarslóð liggur leið í átt Kópavogskirkju þar sem gluggar Gerðar Helgadóttur og nærliggjandi útilistaverk mynda meginþráðinn í frásögninni. Í hljóðefninu fléttast saman viðtöl, frásagnir, umhverfishljóð, tónlist og skáldskapur en í þessu fyrsta hljóðvappi Flanerís koma meðal annars fram Sigurður Arnarson, sóknarprestur, Jón Proppé, heimspekingur og Teresa Himmer, myndlistarkona. Hið þekkta öðlast nýjan blæ, hlustendur fara í ferðalag á kunnuglegar en jafnframt framandi slóðir í persónulegum og ljóðrænum hljóðheimi.

Framundan eru fleiri göngur frá Flanerí-hópnum sem fékk styrk til að framleiða fjórar hljóðgöngur um Kópavog. Sjá nánar á www.flaneri.is.

Flanerí KÓP er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

26
nóv
17
des
Menning í Kópavogi
13:00

Jólalundur í Guðmundarlundi

06
des
Menning í Kópavogi
20:00

Krimmakviss í 27 Mathús & bar

06
des
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

06
des
Gerðarsafn
17:00

Samtal við Skúlptúr/Skúlptúr

06
des
Bókasafn Kópavogs
16:00

Aðventutónleikar TK

06
des
Gerðarsafn
12:15

Sýningastjóraleiðsögn um Skúlptúr/Skúlptúr

07
des
Bókasafn Kópavogs
15:00

Lesið á milli línanna

07
des
Gerðarsafn
Foreldramorgnar
10:00

Foreldramorgnar í Gerðarsafni

07
des
15
des
Salurinn
20:00

Litlu jólin með Tvíhöfða

09
des
Gerðarsafn
13:00

Vetrarórói

09
des
Bókasafn Kópavogs
11:30

Sögustund með Arndísi Þórarinsdóttur

10
des
Salurinn
20:00

Jóladraumur í Salnum

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR