Vilt þú auðga menningarlífið í Kópavogi?

Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða sem efla menningu og mannlíf í bænum.

Leitað er að skapandi og aðgengilegum verkefnum sem fela í sér nýsköpun og geta höfðað til fjölbreytts hóps íbúa. Einstaklingar, listhópar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir á sviði lista, hönnunar eða arkitektúrs eru hvött til að sækja um.

Við leitum sérstaklega að verkefnum og viðburðum sem:

  • einkennast af nýsköpun, ferskleika og skapandi hugsun,
  • eiga sér stað í efri byggðum Kópavogs,
  • henta dagskrá nýrrar bæjarhátíðar í Kópavogi sumarið 2027,
  • bjóða upp á gott aðgengi og höfða til sem flestra íbúa bæjarins.

Umsókn þarf að innihalda:

  • skýra lýsingu á gildi verkefnisins fyrir menningar- og mannlífið í Kópavogi,
  • framkvæmdaáætlun,
  • greinargóða fjárhagsáætlun.

Rafrænar umsóknir, úthlutunarreglur og menningarstefnu Kópavogs má finna á vef MEKÓ.

Frekari fyrirspurnir má senda til Soffíu Karlsdóttur, forstöðumanns menningarmála í Kópavogi, á netfangið soffiakarls@kopavogur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2026.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
17
okt
Bókasafn Kópavogs
17
okt
Bókasafn Kópavogs
18
okt
Salurinn
19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn

Sjá meira