Bækur tengja fólk saman – Bækur eru bestar 

Bókasafn Kópavogs leiðir átakið Bækur eru bestar á Íslandi

Bókasafn Kópavogs hefur verið valið sem íslensk miðstöð verkefnisins Bækur eru bestar (e. Read for Real) og er hluti af samevrópsku samstarfi í tengslum við European Authors Day. Verkefnið er styrkt af Creative Europe og hefur það að markmiði að hvetja fólk til lesturs og skapa tækifæri til að kynnast bókum, höfundum og lestrarmenningu um alla Evrópu. 

„Við erum afar stolt af því að hafa verið valin sem miðstöð verkefnisins á Íslandi,“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs. 

„Þetta er einstakt tækifæri til að vekja athygli á lestri og bókmenntum og tengja íslenska lesendur við stærra samfélag bókaunnenda. Við hlökkum sérstaklega til að sjá hvernig bókasöfn um allt land nýta sér verkefnið og gera það að sínu.“ 

Öll almenningsbókasöfn taka þátt 

Dagana 11. nóvember til 12. desember verður boðið upp á fjölbreytta viðburði og lestrarverkefni undir yfirskriftinni Bækur eru bestar á öllum almenningsbókasöfnum landsins. 

Markmiðið er einfalt en mikilvægt; að vekja athygli á bókum, höfundum og þeirri gleði sem felst í lestri. 

„Við viljum að sem flest taki þátt, hvort sem það er með því að mæta á viðburði, smiðjur eða taka þátt í lestraráskorunum. Við munum bjóða upp á lestrarbingó fyrir börn og lestraráskoranir fyrir ungmenni og þau sem taka þátt eiga kost á að vinna vegleg verðlaun“ segir Lísa.  

Höfundur í heimsókn 

Sem lokahnykkur á íslenskri dagskrá verkefnisins kemur sænski rithöfundurinn Karin Härjegård í heimsókn á Bókasafn Kópavogs þann 9. desember. Karin er einn af þekktustu ljúflestrarhöfundum Svíþjóðar en hún hefur skrifað metsölubækur á borð við Litla vöffluhúsið í fjöllunum. Áður en Karin varð rithöfundur á fullu starfi starfaði hún lengi sem fjallaprestur í sænsku kirkjunni í Áre. Þessi bakgrunnur hennar og mikil ást á náttúrunni endurspeglast sterkt í sögunum, sem þykja innilegar og manneskjulegar. 

„Það er alltaf sérstakt að fá höfunda í heimsókn og skapa tækifæri fyrir lesendur að hitta fólkið á bak við sögurnar,“ segir Lísa. „Slíkir fundir geta opnað nýjar víddir í lestrarupplifuninni og veitt innsýn í sköpunarferlið sem fæst ekki með því einu að lesa bókina.“ 

Á bókaspjallinu mun Karin segja frá verkum sínum og höfundarferli og svara spurningum gesta. Spjallið fer fram á ensku en túlkur verður á staðnum. Guðrún Sóley Tómasdóttir mun stýra umræðum. Viðburðurinn endar svo með útgáfuhófi þar sem útgáfu nýjustu bókar höfundar á íslensku verður fagnað.  

Bókaklúbbur þar sem allar bækur eiga heima 

Áður en höfundakvöldið fer fram verður efnt til opins bókaklúbbs þar sem þátttakendur koma með bók að eigin vali og segja frá henni. 

„Við vildum skapa vettvang þar sem fólk getur einfaldlega komið saman og rætt bækur. Það skiptir ekki máli hvort um sé að ræða nýjustu metsölubókina eða uppáhaldsbókina sem er endurlesin árlega. Allar bækur eiga heima í þessum bókaklúbbi.“ 

Skapandi stund fyrir yngstu lesendurna 

Yngstu gestunum býðst einnig að taka þátt í bókamerkjasmiðju þar sem föndruð verða lífleg bókamerki. „Við viljum að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Fyrir börn er þetta skemmtileg leið til að tengja saman lestur og sköpun. Stundum þarf ekki mikið til að kveikja áhuga á bókum og fallegt bókamerki getur orðið upphaf að næsta lestrarævintýri,“ segir Lísa. 

Sameiginleg hátíð lestrar 

Aðspurð um hvað hún vonist helst til að fólk taki með sér frá verkefninu svarar Lísa: „Vonandi minna þessir viðburðir okkur á hversu mikils virði bækur og lestur eru. Þær fræða okkur, skemmta og hjálpa okkur að skilja bæði okkur sjálf og aðra betur. Bækur tengja fólk saman og sífellt fleiri rannsóknir benda til þess að lestur hafi áhrif á bætta geðheilsu og auki samkennd. Þess vegna finnst okkur sérstaklega viðeigandi að verkefnið heiti einfaldlega Bækur eru bestar.“ 

Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði verða kynntar á vef og samfélagsmiðlum Bókasafns Kópavogs og annarra almenningsbókasafna. 

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
14
nóv
Bókasafn Kópavogs
14
nóv
Salurinn
15
nóv
Salurinn
16
nóv
Bókasafn Kópavogs
17
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
nóv
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira