Öll geta fundið sína menningu í Kópavogi
Menningarhúsin bjóða þér í heimsókn og kynna þér glæsilega dagskrá vetrarins. Við göngum saman á milli húsa undir leiðsögn Vigdísar Jakobsdóttur, verkefnastjóra viðburða, og hittum fyrir forstöðumenn, fáum smakk af dagskrá vetrarins og gæðum okkur á léttum veitingum.
Við hittumst í Gerðarsafni kl. 17 þar sem Kvennakórinn Blika syngur m.a. fyrir gesti og safnstjóri segir frá starfinu fram undan. Á Náttúrusafninu verður örleiðsögn um safnið sem er í sífelldri mótun og á bókasafninu flytur skáldagyðjan Guðrún Eva Mínervudóttir stutta hugvekju. Við endum í forsal Salarins þar sem verður stiklað á stóru um dagskrá haustsins og hin óviðjafnanlega Hanna Dóra Sturludóttir tekur lagið.
Eitthvað fyrir öll – hlökkum til að sjá ykkur
Gleðilegan menningarvetur.









