Vetrarhátíð í Kópavogi

Á Vetrarhátíð í Kópavogi verður verki eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur varpað á Kópavogskirkju föstudags- og laugardagskvöldið 4. – 5. febrúar frá 18 – 23. Hátíðin verður að þessu sinni lágstemmd og munu ljósaverk og listaverk utandyra vera í forgrunni.

Verk Sirru, sem er gert sérstaklega fyrir form Kópavogskirkju og í samtali við list Gerðar Helgadóttur, er gert að beiðni Kópavogsbæjar í tilefni Vetrarhátíðar. 

Verk Sirru eru kosmísk í eðli sínu og tengjast vangaveltum um stöðu okkar í gangverki náttúru, eðlisfræði og þeirra afla sem halda heiminum gangandi. Nýtt verk Sirru sækir innblástur í verk Gerðar Helgadóttur; vitnað er til lita og forma í gler- og mósaíkverkum Gerðar, en jafnframt til áhuga hennar á gangi himintungla, dulspeki og tengingu mannsins við alheiminn.

Sirra Sigrún Sigurðardóttir (mynd: Listaháskóli Íslands)

Sirra Sigrún lauk BA prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og útskrifaðist með meistaragráðu frá School of Visual Arts í New York 2013. Hún hefur haldið einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Listasafni Árnesinga, Hafnarborg og Kling & Bang og tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim, þar á meðal í Kína, Finnlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. 

Sirra hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir list sína og m.a. fengið styrki og viðurkenningar úr listasjóðum Svavars Guðnasonar, Guðmundu Andrésdóttur og verðlaun Guðmundu S. Kristinsdóttur. Sirra Sigrún var listamaður Kærleikskúlunnar 2021.

Verkinu verður varpað á Kópavogskirkju frá 18 – 23 föstudags- og laugardagskvöldið 4. og 5. febrúar.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

27
sep
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

27
sep
Salurinn
12:15

Ástin, bjartsýnin og andskotans blaðrið í fólkinu

27
sep
Salurinn
20:00

Eyjapistlarnir ógleymanlegu | Gísli Helgason og Eyjalögin

28
sep
26
okt
Salurinn
20:30

Tvíhöfði

28
sep
Bókasafn Kópavogs
12:15

Hádegisdjass með söngdeild FÍH

29
sep
Salurinn
20:00

UNA TORFA

30
sep
Salurinn
20:00

Söngkvöld í Salnum

30
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs
13:00

Sjávarlífverur og sjávargróður

30
sep
07
jan
Gerðarsafn

Skúlptúr/Skúlptúr

01
okt
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn listamanna | Skúlptúr/Skúlptúr

02
okt
07
okt
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

04
okt
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR