Kraftmikið menningarstarf í Kópavogi

Ársskýrsla menningarmála í Kópavogi kom nýverið út og er í henni farið yfir helstu rekstrarþætti málaflokksins auk sérstakrar umfjöllunar um hvert menningarhús bæjarins; Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Héraðsskjalasafn, Náttúrufræðistofu og Salinn.

Mikið var að gerast í menningarlífinu í Kópavogi árið 2021, þrátt fyrir áhrif heimsfaraldurs kórónaveirunnar. Í menningarhúsum bæjarins voru haldnir 825 menningarviðburðir og tæplega tvöhundruð þúsund gestir mættu í húsin. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni ársskýrslu MEKÓ, menningarmála í Kópavogi, fyrir árið 2021. Alls sköpuðust um 600 afleidd störf vegna viðburða og sýninga sem fram fóru á vegum bæjarins.

Í skýrslunni er farið yfir helstu rekstrarþætti málaflokksins auk sérstakrar umfjöllunar um hvert menningarhús bæjarins; Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Héraðsskjalasafn, Náttúrufræðistofu og Salinn.

Menningarstarfi bæjarins var haldið úti af rúmlega 63 starfsmönnum sem tilheyra málaflokknum en auk þess voru um 20 starfsmenn ráðnir tímabundið á árinu sem hluta af úrræði Vinnumálastofnunar. Afleidd störf, aðallega á meðal lista-, vísinda- og fræðafólks, voru um það bil 600 talsins árið 2021. Er það afar fjölbreyttur hópur sem kemur að hinni viðamiklu og ólíku menningardagskrá bæjarins sem árið 2021 taldi 825 viðburði og sýningar. Þá sóttu alls 41.675 gestir sem nemur 37% aukningu milli ára. Aukning er mjög ánægjuleg í ljósi þess að enn var mikið um samkomutakmarkanir allt árið 2021.

Mikil áhersla er á menningarlæsi og menningalegt uppeldi grunnskólabarna og allt kapp lagt á metnaðarfull, skapandi og örvandi verkefni sem unnin eru af fagfólki á sérhverju sviði. Alls sóttu 9.309 börn og ungmenni á öllum skólastigum menningarhúsin heim í 386 heimsóknum.

Ársskýrslan telur 88 blaðsíður. Þar er auk ofangreinds fjallað um menningarstefnu, hlutverk og leiðarljós málaflokksins, stefnumörkun, styrkveitingar, auk greiningar á fjármálum og mannauðsmálum.

„Árið 2021 var krefjandi í ljósi tíðra samkomutakmarkana, en með öflugu starfsfólki tókst okkur að halda úti viðamikilli starfsemi og brydda upp á ýmsum nýjungum. Við sem sinnum menningarmálunum fundum líka á þessum krítíska tíma hversu miklu máli menningin skiptir, fólk var þakklátt og fegið þegar hægt var að njóta menningar og mæta á viðburði af ýmsum toga. Svo má geta þess að við sættum færis eins og kostur var og sinntum viðhaldi menningarhúsanna, endurnýjuðum tækjakost í Salnum og hlúðum almennt að innviðum svo eitthvað sé nefnt. Við sem störfum að menningarmálum í Kópavogi horfum bjartsýn og full tilhlökkunar fram á veginn og sjáum fram á að hlutirnir séu að færast í rétt horf með talsverðri uppsveiflu í aðsókn og fjölda metnaðarfullra viðburða.“

Segir Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi í tilefni af útkomu skýrslunnar.

Frekari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi, í soffiakarls@kopavogur.is eða í síma 441 7606.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

23
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

24
apr
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

24
apr
Gerðarsafn
12:15

Sjálfsmyndir og minningar

25
apr
Bókasafn Kópavogs
17:00

Sumardagsdjass með Tónlistarskóla FÍH

25
apr
Bókasafn Kópavogs
18:00

Bókabeitan og skvísubækurnar

25
apr
Bókasafn Kópavogs
13:00

Dúfur og dirrindí | Sumarsmiðja

25
apr
Salurinn
16:00

Sumargleði Bíbíar og Mandólín

25
apr
Gerðarsafn
15:00

Krakkaleiðsögn á sumardegi

27
apr
Gerðarsafn
12:00

Barnamenningarhátíð í Kópavogi

27
apr
Gerðarsafn
13:00

Leiðsögn | Þór Vigfússon og Heiðar Kári Rannversson

27
apr
Bókasafn Kópavogs
13:30

Ævintýrakórónur á Barnamenningarhátíð

27
apr
Gerðarsafn
14:30

Geimveruslamm og brúðusmiðja

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR