Bókasafn Kópavogs hlaut á dögunum 3.750.000 kr. styrkveitingu úr Bókasafnasjóði frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Um tvo styrki var að ræða.
Forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, Lísa Z. Valdimarsdóttir tók á móti styrkjunum, en hún tilkynnti einnig um styrkina sem varaformaður Bókasafnaráðs.
Bókasafn fjölbreytileikans 1.200.000 kr.
Bókasafn er meira en bara bókasafn, það er menningar- og samfélagsmiðstöð þar sem öll eru velkomin, óháð uppruna, kyni, kynhneigð, færni eða bakgrunni. Bókasafn fjölbreytileikans er átaks- og þróunarverkefni sem miðar að því að fagna fjölbreytileikanum á öllum sviðum og bregðast við því bakslagi sem margir jaðarsettir hópar hafa mætt í réttindabaráttu sinni.
Sumarlestur 2.550.000 kr.
Verkefnið felst í því að efla áhuga barna á yngsta og miðstigi grunnskóla á lestri yfir sumarmánuðina með sameiginlegu landsátaki bókasafna. Til að styðja við átakið verður sett upp sérstök undirsíða fyrir sumarlestur á vefnum Bokasofn.is. Þar verður hægt að nálgast sameiginlegt efni, verkefni, hugmyndabanka og upplýsingar sem öll bókasöfn landsins geta nýtt sér.
Í matsnefnd Bókasafnasjóðs fyrir úthlutanir úr sjóðnum árið 2026 sátu eftirfarandi fulltrúar úr Bókasafnaráði: Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar (formaður). Njörður Sigurðsson og Örn Hrafnkelsson.
Sjá nánar á vefsíðu Stjórnarráðsins: Stjórnarráðið | Úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði og Bókasafnssjóði 2025












