Menningarhúsin í Kópavogi leita að hugmyndaríkum og kraftmiklum krökkum til þess að vera fulltrúar grunnskóla Kópavogs í sýningarstjórateymi fyrir sýningu í Gerðarsafni. Sýningin er hluti af þriggja ára samnorrænu verkefni þar sem norrænar barnabókmenntir eru tengdar við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun þar sem fjallað er um gildi á borð við sjálfbærni og jafnrétti fyrir börnum og ungmennum.
Ungir sýningarstjórar munu starfa með sýningarstjórum Vatnsdropans við val á efni og viðburðum tengdum sýningu um Múmínálfana eftir finnska höfundinn Tove Jansson. Sýningin um Múmínálfana verður sett upp í Menningarhúsunum í Kópavogi vorið 2021.
Allir grunnskólanemendur í Kópavogi í 4.-10. bekk eru velkomnir að sækja um.
Áhugasamir eru hvattir til að senda kynningarbréf (þar sem fram kemur nafn, aldur, skóli og áhugamál), tveggja mínútna myndband og/eða eina til þrjár teikningar. Umsókn skal sendast á vatnsdropinn@kopavogur.is eða menningarhusin@kopavogur.is
Í umsókninni skal eftirfarandi koma fram:
- Af hverju þú vilt taka þátt í verkefninu?
- Hvernig væri hinn fullkomni heimur að þínu mati?
- Hvernig lítur hinn fullkomni heimur út í augum uppáhalds sögupersónununnar þinnar (úr bíómynd eða bók)?
Hvað felur verkefnið í sér?
- Ungir sýningarstjórar munu vinna með verkefnastjórum Menningarhúsanna, Múmínsafnsins og H.C. Andersen safnsins ásamt jafnöldrum sínum á Norðurlöndunum undir stjórn Chus Martinez, sýningarstjóra.
- Ungir sýningarstjórar mæta á nokkra samráðsfundi í Menningarhúsunum í Kópavogi.
- Ungir sýningarstjórar munu hafa bein áhrif á efnistök sýningarinnar og viðburði sem og fræðsluefni í tengslum við sýninguna.
- Niðurstaða ungra sýningarstjóra verður kynnt í sambærilegu verkefni á Norðurlöndunum.
- Ungir sýningarstjórar þurfa að hafa góð tök á ensku.
Frekari upplýsingar um verkefnið veitir Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefna- og viðburðastjóri menningarmála í Kópavogi, í elisabet.indra@kopavogur.is.