ÞYKJÓ og Midpunkt hljóta hæstu styrkina frá lista- og menningarráði Kópavogs

Lista- og menningarráð Kópavogs hefur nú lokið úthlutun úr lista- og menningarsjóði bæjarins en markmið hans er að stuðla að eflingu menningar- og listalífs í Kópavogi. 59 umsóknir bárust að þessu sinni og hlutu 13 verkefni framgang. Hæsta framlagið hljóta hönnunarverkefnið ÞYKJÓ og listamannarýmið Midpunkt eða 4.000.000 kr. hvor en tilkynnt var um úthlutanir við athöfn sem fram fór í Gerðarsafni föstudaginn 15. janúar 2021.

Hönnuðir ÞYKJÓ verða staðarlistamenn í Kópavogi árið 2021 og munu á þeim tíma vinna að þverfaglegu rannsóknar- og hönnunarstarfi fyrir börn og fjölskyldur þeirra í samvinnu við Gerðarsafn, Salinn, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Bókasafn Kópavogs. ÞYKJÓ sérhæfir sig í búningum, innsetningum og listasmiðjum fyrir börn en innan vébanda hópsins eru barnamenningarhönnuður, textílhönnuður, búninga- og leikmyndahönnuður, arkitekt og klæðskerameistari.

„Hönnun ÞYKJÓ sprettur upp úr þverfaglegu samtali og hönnuðir í teyminu þrífast á því að grúska og gera tilraunir. Það er því mikill fengur fyrir okkur að komast í starfsumhverfi menningarstofnana í Kópavogi sem snýr einmitt að því að byggja brýr á milli ólíkra listgreina, fræða og vísinda. Fyrsta lína ÞYKJÓ, Ofurhetjur jarðar, er óður til töfra dýraríkisins annars vegar og leikgleði, ímyndunarafls ogsköpunarkrafts barna hins vegar, sem ákall um að hvort tveggja þurfi að vernda og varðveita“ segir Sigríður Sunna Reynisdóttir, leikmynda- og búningahönnuður í hönnunarverkefninu ÞYKJÓ.  

Midpunkt er metnaðarfullt og framsækið listamannarými við Hamraborg, sem starfrækt hefur verið með fjölbreyttri og áhugaverðrisýninga- og viðburðadagskrá í rúmlega tvö ár af þeim Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnarðson og Snæbirni Brynjarssyni og skipað sér algera sérstöðu í innlendu listalífi. 

„Midpunkt er mikilvægur vettvangur fyrir samtímalist af ýmsum toga og hefur það að markmiði að kynna nýjar, spennandi raddir, erlendalistamenn í bland við innlenda, upprennandi listamenn. Midpunkt hefur verið bakhjarl fyrir tvær menningarhátíðir í Hamraborg, og haldiðtónlistar-, sviðslista- og bókmennta-viðburði, auk myndlistasýninga á eins mánaðar fresti síðan staðurinn var opnaður í október 2018,“ segirSnæbjörn Brynjarsson hjá Midpunkt. 

Aðrir sem fengu úthlutað úr Lista- og menningarsjóði Kópavogs voru eftirfarandi: 

1.500.000 kr. 
– Snorri Rafn Hallsson, Aðalbjörg Árnadóttir, Elísabet Jónsdóttir, Rannveig Bjarnadóttir fyrir Flanerí Kóp: Hljóðvapp um sögu og samtíma Kópavogs. 

600.000 kr. 
– Sólfinna fyrir Jazztónleikaröð Sunnu Gunnlaugsdóttur í Salnum. 
– Aude Maina Anne Busson fyrir Manndýr, þátttökusviðslistaverk fyrir börn. 

493.875 kr. 
– Andrea Elín Vilhjálmsdóttir: Tveir viðburðir á vegum Plöntutíðar í Kópavogi

330.000 kr.  
– Stílvopnið-valdefling og sk ehf fyrir Hetjuferðina í Bókasafni Kópavogs, ritlistasmiðjur fyrir ungmenni og eldri borgara.  

300.000 kr.  
– Ásgeir Jón Ásgeirsson fyrir þjóðlagasextett. 
– Karlakór Kópavogs fyrir Kópavogstóna, sönglög með rætur í Kópavogi, útsett fyrir karlakór. 
– Kvennakór Kópavogs fyrir vor- og jólatónleika. 
– Samkór Kópavogs.

270.000 kr.
– Elísabet Waage og Laufey Sigurðardóttir fyrir fiðlu- og hörputónleika.

250.000 kr.
– Þórður Steingrímur Guðmundsson fyrir myndgreiningafundi á Héraðsskjalasafni Kópavogs.
– Dansgarðurinn fyrir tvær sýningar á The Mall eftir Sögu Sigurðardóttur í flutningi Forward í Smáralindinni.

150.000 kr.
– Wioleta Anna Ujazdowska fyrir blómaverk úr plasti unnið með grunnskólabörnum.

Að auki styrkir Lista- og menningarráð viðburðaraðir og hátíðir á vegum bæjarins svo sem viðburðaraðirnar Menning á miðvikudögum, Fjölskyldustundir á laugardögum, Vetrarhátíð og Safnanótt, Aðventuhátíð, Ljóðstaf Jóns úr Vör og fleira.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

30
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

30
apr
02
maí
Menning í Kópavogi

Logar í skýjum

01
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

02
maí
Bókasafn Kópavogs
15:00

Lesið á milli línanna

04
maí
Bókasafn Kópavogs
11:30

Lesið fyrir hunda

04
maí
Salurinn
14:00

Herra Hnetusmjör

04
maí
Menning í Kópavogi
13:00

Dr. Bæk í Kópavogi

06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

07
maí
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

08
maí
Bókasafn Kópavogs
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

08
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

08
maí
Menning í Kópavogi
12:15

Kársnes. Úr ræktarlandi í nútímabyggð

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR