Á þessu ári höfum við þurft að tileinka okkur listina að vera heima. Heima með fjölskyldunni, ein heima, heima að vinna og heima með Helga Björns.
Í tilraun til að færa almenningi listsköpun á furðulegum tímum fékk Gerðarsafn sex listamenn til að búa til ný leiðbeiningaverk. Verkin birtust fyrst í jóladagatali Menningarhúsanna í Kópavogi og höfum við nú safnað þeim saman í einn jólapakka af list sem hægt er að framkvæma heima í jólafríinu!
Endilega deilið útkomunni af listköpun ykkar á samfélagsmiðlum og taggið Gerðarsafn #gerðarsafn #listinadveraheima
Verkefnið var styrkt af Safnasjóði