Splunkuný og forvitnileg danstónlist eftir Baldur Skúlason og Elías Geir Óskarsson. Öll hjartanlega velkomin og aðgangur ókeypis.
Verkefnið Hreyfing er hljómplata tileinkuð hinum ýmsu hefðum danstónlistar síðustu 50 ára. Í hverju lagi taka tónlistarmennirnir fyrir mismunandi upptökustíla í samræmi við þá undirtegund af danstónlist sem þeir einblína á í hvert sinn. Svo setja þeir lögin í nýstárlegan búning með þeirra eigin stíl svo úr verður heilsteypt samansafn af lögum.
Tónleikarnir eru liður í viðburðadagskrá Skapandi sumarstarfa í Kópavogi.