06.des 17:00 - 17:45

Samtal við Skúlptúr/Skúlptúr

Gerðarsafn

Síðdegistónleikar með tónlistarhópnum Skerplu.

Tónlistarhópurinn Skerpla kemur fram á síðdegistónleikum í Gerðarsafni þar sem hann skapar hljóðheim og viðbragð við verk á samsýningunni Skúlptúr/Skúlptúr.

Skerpla, sem starfar innan Listaháskóla Íslands, skapar og flytur tónlist af tilraunakenndum toga með það að markmiði að víkka út hefðbundnar hugmyndir um tónlist. Hópurinn hefur komið fram á fjölda tónleika og hátíða, má þar nefna Sequences, Myrka músíkdaga, Hönnunarmars og Hljóðön í Hafnarborg. Listrænn stjórnandi hópsins er Berglind María Tómasdóttir.

Þrennir tónleikar Skerplu eru fyrirhugaðir í tengslum við sýninguna í Gerðarsafni; miðvikudagana 18. október, 15. nóvember og 5. desember. Tónleikarnir hefjast klukkan 17 og standa yfir í 30 – 40 mínútur.

Skerplu skipa Aiden Dumitru, Baldur Snær Bachmann. Diana Burkot, Egill Ásdísarson, Eydís Egilsdóttir Kvaran, Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir, Karolis Dabulskis, Konrad Stanislaw Groen, Konstantine Vlasis, Kristrún Steingrímsdóttir, Lidong Lin, Michael Richardt Petersen og Ólöf Sigríður Valsdóttir.

Sýningin Skúlptúr/Skúlptúr er samsýning tíu ólíkra listamanna sem hverfist um skúlptúrinn og ólíkar birtingarmyndir hans í samtímalist. Listamennirnir tíu koma úr ólíkum áttum en hafa allir sett mark sitt á íslenska samtímalist með einum eða öðrum hætti. Hér er reynt á mörk miðilsins- hvað varðar stærð, tækni, rými, viðhorf og hlutverk okkar sem áhorfanda en listamenn sýningarinnar eru Andreas Brunner. Anna Líndal, Claire Paugam. Elísabet Brynhildardóttir, Eygló Harðardóttir, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Ingrid Ogenstedt, Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð, Martha Haywood og Raimonda Sereikaité. Sýningarstjórar eru Brynja Sveinsdóttir og Cecilie Gaidhede. 

Ókeypis er á tónleikana fyrir nemendur LHÍ. Miði á sýninguna gildir að öðrum kosti en almennt miðaverð er 1200 krónur og 600 krónur fyrir aldraða. Frítt fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ára, öryrkja og félaga í SÍM, ICOM og FÍSOS gegn framvísun skírteinis.







Dagsetningar

06.des

17:00 ~ 17:45

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

11
maí
Salurinn
15:00

Fjölskyldutónleikar með Dúó Stemmu

11
maí
Menning í Kópavogi
12:45

Opnunarhátíð í miðstöð menningar og vísinda

11
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Söguhetjurnar

11
maí
Menning í Kópavogi
13:00

Verum memmm

11
maí
Menning í Kópavogi
12:45

Stuðtónar með Lúðrasveit verkalýðsins

11
maí
Bókasafn Kópavogs
13:30

Kórónusmiðja

12
maí
Salurinn
13:30

Kvintettinn Kalais

12
maí
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn um Tölur, staði með Jóni Proppé

12
maí
Bókasafn Kópavogs
12:00

Sögustund með rithöfundi 

27
maí
01
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Plöntuskiptimarkaður

03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

Sjá meira

Gerðarsafn

16
maí
Gerðarsafn
09
jún
Gerðarsafn
Heiðar Kári

Sjá meira