Bókasafn Kópavogs og furðusagnahátíðin IceCon fá rithöfundinn og Kópavogsbúann Emil Hjörvar Petersen í lið með sér og efna til sagnagöngu laugardaginn 11. nóvember.
Emil leiðir göngu um sögusvið nokkurra bóka sinna (Víghólar, Dauðaleit, Hælið), segir m.a. frá tilurð þeirra og hvernig umhverfið spannst inn í sögurnar.
Gangan hefst við útsýnisskífuna á Víghól en þaðan verður gengið niður í Hamraborg, í gegnum undirgöngin og niður að gamla Kópavogshælinu.
Emil Hjörvar er heiðursgestur á IceCon ‒ furðusagnahátíð á Íslandi sem haldin verður í maí næstkomandi.
Öll velkomin og þátttaka er ókeypis. Gangan fer af stað laugardaginn 11. nóvember kl. 13:00 frá Víghól í Kópavogi.