Erla Hlín og Baldur Skúlason
Verkefnið Stupid Cupid er safn af ástarlögum sem fylgja sambandi frá byrjun til enda, frá fyrstu kynnum til sambandsslits, samin og flutt af Erlu Hlín og Baldri Skúlasyni.
Erla og Baldur flytja ástarlögin sem þau hafa samið í sumar á tónleikum í Sundlaug Kópavogs 23. júlí.
Þau lofa góðri, heitri og blautri stemningu. Verkefnið Stupid Cupid er safn af ástarlögum sem fylgja sambandi frá byrjun til enda, frá fyrstu kynnum til sambandsslits, samin og flutt af Erlu Hlín og Baldri Skúlasyni. Þau ætla sér að kynna og rannsaka eðli ástarlaga en líka að nýta vitneskju sína á ástinni og tónlist til þess að fanga tilfinningar í lögunum. Markmiðið er að gefa fólki tækifæri til að upplifa heilt samband á nokkrum mínútum.
Verkefnið er hluti af Skapandi sumarstörfum í Kópavogi.