Sunnudagurinn 19. janúar er síðasti dagur sýninganna Óstöðugt land og Parabólu í Gerðarsafni. Listamenn hitta gesti í safninu þennan dag en Finnbogi Pétursson verður á staðnum frá kl. 14:00 – 18:00 og tekur á móti gestum og Gunndís Ýr Finnbogadóttir og Þorgerður Ólafsdóttir verða á staðnum frá 16:00 – 18:00. Þau munu spjalla við gesti og gangandi og veita innsýn inn í sýningarnar. Öll eru hjartanlega velkomin!