Ó-ljós er nýtt verk eftir Styrmi Örn Guðmundsson sem sýnt verður á Vetrarhátíð í Kópavogi 2025.
Í verkinu gerir listamaðurinn tilraunir með teikningu og fleiri miðla svo til verða hreyfanleg vídeómálverk. Gömul og ný tákn gegna hlutverki og huglægar skírskotanir í trú, trúleysi og manngildi koma við sögu.
Verkinu verður varpað á Kópavogskirkju föstudaginn 7. febrúar og laugardaginn 8. febrúar frá 18 – 24, bæði kvöldin.
—
Styrmir Örn Guðmundsson (f. 1984) er sögumaður, dansari, söngvari og myndskreytari. Hann hrífst af hinu fjarstæðukennda, en með því er frekar átt við milda og kærleiksríka afstöðu en þráhyggju fyrir hinu fáránlega. Hann ber umhyggju fyrir hinu fjarstæðukennda. Hann aðstoðar það við að þróast. Hann gefur því pláss meðfram öllu öðru, þar sem það getur tekið form hins óþolandi nágranna eða þíns besta vinar.
—
Um árabil hefur Kópavogsbær kallað eftir nýju ljóslistaverki sem varpað er á Kópavogskirkju á Vetrarhátíð en kirkjan er helsta kennileiti bæjarins og sést víða að. Á meðal listamanna sem unnið hafa verk fyrir Kópavogskirkju á Vetrarhátíð eru Dodda Maggý, Eygló Harðardóttir, Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Þóranna Björnsdóttir.
Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar styrkir Vetrarhátíð í Kópavogi.
Viðburðamynd: Stilla úr vídeói í vinnslu eftir Styrmi Örn Guðmundsson.