Fjölskyldustundin 8. nóvember fer fram á Lindasafni.
Komum og mótum óróa úr spennandi efnivið sem byggður er á náttúruríkjunum fjórum: Steinaríkið, plönturíkið, dýraríkið og ríki manneskjunnar.
Smiðjan hentar börnum á öllum aldri og öll eru hjartanlega velkomin!
Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.