Í Bróderíklúbbnum 29. september fáum við innsýn í ýmiskonar útsaum fyrir íslenska þjóðbúninga og þjóðbúningahluta, bæði fyrir 19. og 20. aldar búninga. Meðal þess sem við fræðumst um er perslusaumur, baldýraðir borðar með silki og silfri, handlína, faldbúningspils og lausavasi.
Það er Elínbjört Jónsdóttir vefnaðarkennari sem leiðir okkur um fegurð og fjölbreytileika útsaumsins, en Elínbjört hefur meðal annars kennt baldýringar hjá Heimilisiðarfélagi Íslands.
Ertu byrjandi eða með áralanga reynslu af bróderíi? Viltu kannski rifja upp gamla takta og hitta aðra sem deila sama áhuga?
Þá gæti Bróderíklúbburinn hentað fyrir þig.
Bróderíklúbburinn hittist á mánudögum á Lindasafni í Núpalind 7 kl. 14:00.
Öll velkomin og heitt á könnunni.