19.feb 2026 15:00 - 17:00

Öryggi barna á netinu | Vetrarfrí

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | 1. hæð

Komdu við í vetrarfríinu og spjallaðu við Þóru Jónsdóttur sérfræðing um öryggi og vernd barna á netinu.

-Hefur þú einhverja hugmynd um hvað barnið þitt er að gera í símanum?
-Áttu á hættu að barnið þitt panti óvart 100 pizzur í símanum þínum.
-Ert þú að vernda barnið þitt á netinu?
-Ertu að virða réttindi barns þíns til einkalífs þegar kemur að netinu.
-Hafa ókunnugir greiðan aðgang að barni þínu í gegnum tölvuleiki?
-Hvaða tölvuleikir eru sérstaklega varasamir og hverjir eru öruggari?
-Er algóritminn að ala upp barnið þitt?  
-Kanntu að setja foreldrastillingu á tækin til að gæta þess að barnið þitt sjái ekki allt í einu bannað 18+ efni á netinu.
-Færðu samþykki frá barninu þínu áður en þú deilir upplýsingum um það á netinu.
-Hafa ókunnugir aðgang að staðsetningu barns þíns í gegnum app og forrit (eins og snapchat ofl)

Ert þú, eins og svo margir aðrir foreldrar, alveg týnd/týndur/týnt í frumskógi internetsins? Foreldrar nútímans eru að kljást við fordæmalausar áskoranir þegar kemur að uppeldi barna á tímum upplýsingaróreiðu. Allt breytist svo hratt og foreldrar eru í stökustu vandræðum með að fylgja eftir og bregðast við því sem barnið þeirra upplifir í gegnum skjáinn.

Þóra Jónsdóttir verður í barnadeildinni á fyrstu hæð með bás og býður öll velkomin að koma við; spjalla og fá kennslu og ráð.  Nú er tækifæri þitt til að koma og spjalla óformlega við sérfræðing í öryggi og vernd barna á netinu. Fáðu hjálp við foreldrastillingar og góð ráð varðandi „umferðaröryggi barna á netinu.“

Vetrarfrí í grunnskólum Kópavogs 19.-20. febrúar

Aðalsafn

19. febrúar

10:00-11:30 | Bíósýning
12:00-14:00 | Mangasmiðja – myndasögugerð (11+)
14:00-16:00 | LeðurBLÖKU teiknismiðja með Rán Flygenring (Náttúrusafn Kópavogs)
15:00-17:00 | Upplýsingaóreiða: Öryggi barna á netinu (bás í barnadeild)

20. febrúar

08:00-18:00 | Litum dýramyndir (Náttúrusafn Kópavogs)
10:00-11:00 | Örleiðsögn um Náttúrsafnið (Náttúrusafn Kópavogs)
11:00-13:00 | Litateppið smiðja
14:00-16:00 | Teiknismiðja með Systu (Náttúrusafn Kópavogs)

Lindasafn

19. febrúar

13:00-15:00 | Barmmerkjasmiðja
13:00-18:00 | Komdu að lita

20. febrúar

13:00-18:00 | Komdu að lita

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Náttúrusafn Kópavogs
08
mar
Salurinn
09
mar
Bókasafn Kópavogs
10
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Salurinn
20:00

Til Manuelu

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Bókasafn Kópavogs
09
mar
Bókasafn Kópavogs
10
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
mar
Bókasafn Kópavogs
12
mar
Bókasafn Kópavogs
13
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira