07.jún 2026 20:00

Siggi Björns | Sjómannadagstónleikar

Salurinn

5.900 kr.

SJÓMANNADAGUR Í SALNUM – SIGGI BJÖRNS LÍTUR UM ÖXL

Flateyringurinn og heimshornaflakkarinn Siggi Björns heldur tónleika í Salnum í Kópavogi á sjálfan sjómannadaginn, 7. júní.
Þegar Siggi var að alast upp fyrir vestan skiptist árið í tvennt: fyrir og eftir jól – og fyrir og eftir sjómannadag. Spakur maður sagði eitt sinn um Vestfirðinga: „Þeir eru ekki Íslendingar fyrr en þeir eru komnir erlendis.“ Siggi tók því bókstaflega.
Á þessum tónleikum lítur hann um öxl – í tali og tónum – og segir sjóarasögur af verbúðaflakki, sjómennsku og lífsins slarki. Sögur sem eru missannar, en allar með nógu miklu vestfirðusku kryddi til að harðfisklyktin sitji í Salnum í nokkra daga á eftir.
Síðustu fjörutíu ár hefur Siggi verið á ferðinni með gítarinn og spilað í yfir tuttugu löndum – allt frá dimmustu knæpum til virtra
tónleikasala. Hann hefur búið erlendis í yfir þrjátíu og fimm ár, fyrst í Danmörku og nú í Þýskalandi, og spilar ennþá um 150–200 tónleika á ári með eigið efni og vel valdar ábreiður. 

Á sjómannadaginn flytur hann úrval laga úr eigin smiðju – lög sem hafa mótast af sjó, söknuði, húmor og heimsflakki. 

Í hljómsveit kvöldsins verður úrvalslið tónlistarfólks:

  • Pálmi Sigurhjartarson á píanó,
  • Sigurgeir Sigmundsson á gítara,
  • Jón Kjartan Ingólfsson á bassa,
  • Franziska Günther á gítar og söng,
  • og sonur hans, Magnús Björnsson, á trommur.

Auk þess má búast við góðum gestum á sviðið, meðal annars félögum úr Hljómsveitin Æfingu – svo eitthvað sé nefnt.

Eitt er víst: Þetta verður skemmtilegt ferðalag um tíma og tíð – með sögum, söng og salti í lofti. Sjómannadagurinn fær hljóm, hjarta og kannski örlitla harðfisklykt.

Deildu þessum viðburði

08
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
22
júl
Bókasafn Kópavogs
29
júl
Bókasafn Kópavogs
05
ágú
Bókasafn Kópavogs
11
ágú
Menning í Kópavogi
12
ágú
Bókasafn Kópavogs
18
ágú
Bókasafn Kópavogs
19
ágú
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

06
ágú
Salurinn
23
ágú
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

04
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
12
nóv
Salurinn
25
nóv
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

06
júl
10
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

14
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
17
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

06
ágú
Salurinn
10
ágú
16
ágú
Salurinn
23
ágú
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

12
sep
Salurinn
13
sep
19
sep
Salurinn
13
sep
Salurinn
20:00

GÁRUR

14
sep
Salurinn
17:00

ÞRÆÐIR

15
sep
Salurinn

Sjá meira