
Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar Eldjárn, Aspar Eldjárn og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og sökum þess voru þau flutt í heimahagana fyrir norðan.
Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög sem Örn og Ösp höfðu bæði samið í gegnum árin en aldrei fundið þeim farveg fyrr en í þessu verkefni.
Nú fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar, sem kemur út á vínyl og verður hún til sölu á tónleikunum. Þau leika lög af plötunni í heild sinni, auk ábreiða af lögum sem eru í uppáhaldi hjá systkinunum.
Á tónleikunum fá þau til liðs við sig Sigmar Þór Matthíasson á bassa og Þorvald Þór Þorvaldsson á slagverk.














