Verið velkomin listasmiðjuna Form tala saman – við byggjum heim í Gerðarsafni laugardaginn 28. mars frá kl. 13-15.
Í smiðjunni verður leikið með grunnformin á frjálslegan hátt. Hver þátttakandi vinnur þrívíðan skúlptúr eða byggingu úr pappír og límböndum.
Leiðbeinandi er Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir myndlistarmaður.
Smiðjann er haldin í tengslum við sýninguna Hörður með verkum eftir Hörð Ágústsson.
Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Í formrænni könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!












